Björgunarfélag : Fréttir
Annir hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar
12. október 2009
Á laugardag var mikið um að vera hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar en um miðnætt tilkynnti lögregla að skipið Ásgrímur Halldórsson væri að losna frá byrggju. Var allt lið björgunarfélagsins kallað út sem og Björn lóðs og björgunarskipið Ingibjörg.
Lóðsinn og björgunarskipið ýttu skipinu að bryggju svo hægt væri að binda það betur. Gekk það vel og var verkinu lokið á u.þ.b. klukkustund.
Þegar því var lokið fóru nokkrir félagar inn í Nesjahverfi þar sem vatnselgur hafði myndast og dældu þar úr húsum og hreinsuðu niðurföll til klukkan sjö um morguninn. Þá hafði flætt inn í þrjú hús svo af varð nokkurt eignatjón. A
Um klukkan 9:30 var sveitin aftur kölluð út til að bjarga um 700 rollum sem flætt hafði inni í Skógey. Það verkefnið var unnið í vöðlum og flotgöllum og var fénu komið á öruggan stað. Einhver afföll urðu þó á hópnum þar sem fé drukknaði í vatnsflaumnum. Verkinu varlokið um klukkan 15:00 og var þá kominn tími á hvíld hjá mannskapnum
