Ýmsar viðurkenningar
Brunnhóll hefur hlotið hlotið nokkrar viðurkenningar fyrir starfssemi sína
Það fer vel á að vekja með formlegum hætti athygli á því sem vel er gert. Að fá klapp á bakið er öllum nauðsynlegt og getur skipt sköpum fyrir viðkomandi sem oft eru að vinna að verkefnum, þar sem árangur er kannski ekki svo mælanlegur.
En besta viðurkenningin felst þó í ánægðum gestum sem koma aftur og aftur.
Better business
Árið 2008 ákvað Ferðaþjónusta bænda að að fara í samstarf við fyrirtækið Better Business sem sérhæfir sig í „hulduheimsóknum“ (á ensku: Mystery Shooping). Þetta er verkefni til 3ja ára en það voru alls 22 ferðaþjónustubæir sem tóku þátt í verkefninu sumarið 2008. Markmiðið var að hver bær fengi þrjár heimsóknir og tókst það í mörgum tilfellum. Vegna mikilla bókana á nokkrum staðanna gekk erfiðlega að fá gistingu þar og fengu því ekki allir 3 heimsóknir.
Fimm bæjum voru veitt sérstök viðurkenningarskjöl fyrir góðan árangur en þeir fengu heildareinkunn yfir 8,5 og telst það vera mjög góður árangur. Brunnhóll á Mýrum í Hornafirði er einn þessara bæja. Smellið á myndina til að sjá viðurkenningarskjalið.
Green Globe vottun
Green Globe eru alþjóðleg umhverfisvottunarsamtök sem stuðla að sjálfbærari ferðaþjónustu á meðal neytenda, fyrirtækja og samfélaga. Vottunin byggir á Dagskrá 21 og hugmyndafræði um sjálfbæra þróun. Skrifstofa Ferðaþjónustu bænda og nokkrir félagar hafa gengið til liðs við Green Globe og vinna þannig á markvissan hátt að umhverfismálum.
Brunnhóll á Mýrum í Hornafirði er einn þessara bæja. Smellið á myndina til að sjá viðurkenningarskjalið.
Vegna umtalsverðra breytinga á starfssemi Green Globe (Earth ? ) hættum við þáttöku í verkefninu en vinnum eftir sem áður í anda sjálfbærrar þróunar og vinnum af metnaði að umhverfismálum eins og fyrr.
Viðurkenning frá Búnaðarsambandi Austur-Skaftafellssýslu
dsfasdyrehsareer Smellið hér til að sjá skjalið
![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)



