Ferðaþjónusta bænda

Fjölbreytt gisti og veitingaþjónusta

ferdathj.baendahnappurFerðaþjónustubændur á Suðausturlandi bjóða upp á fjölbreytta gisti- og veitingaþjónustu.  Ef þú sérð vörumerki þeirra, burstabæinn, við þjóðveginn eða þegar komið er í hlað, getur þú verið viss um að staðurinn hefur staðist gæðavottun Ferðaþjónustu bænda.


Ferðaþjónusta bænda - Ferðaþjónusta bænda

Árnanes 5

Árnanes - Gistiheimili og hestaleiga

Árnanes býður upp á gistingu fyrir 40 manns í 18 herbergjum. Herbergin eru í fimm aðskildum húsum, vel búin og rúmgóð.

Í Árnanesi er veitingasalur sem tekur 40 manns í sæti og er þar lögð áhersla á sjávarrétti og hefðbundinn íslenskan mat.

Í Árnanesi er boðið upp á hestaferðir fyrir alla fjölskylduna.

Sjá

Brunnhóll

Brunnhóll - ferðaþjónusta bænda

Á Brunnhóli er boðið upp á gistingu í sérhúsi í 20 tveggja og þriggja manna velbúnum herbergjum, m.a. með sjónvarpi og hárþurrku og öll með sér baði nema tvö. Sérbúin herbergi fyrir fatlaða. Reyklaust hús. Í húsinu er gott sameiginlegt eldhús og setustofa. Símasjálfsali og aðgangur að tölvu og þráðlausu interneti. Veitingasalur opinn allan daginn þar sem hægt er að kaupa heimagerðan rjómaís, Jöklaís. Kvöld- og morgunverðarhlaðborð er í boði fyrir næturgesti.

Sjá

Frost og Funi Hofi í Öræfum

Frost og Funi, Hofi í Öræfasveit

Á gistiheimilinu „Frost og Funi“ eru 21 herbergi, gestamóttaka með stórri setustofu og rúmgóður matsalur. Á jarðhæð hefur verið opnuð heilsulind fyrir gesti gistiheimilisins. Hof er staðsett í einni fegurstu og sérkennilegustu sveit á Íslandi, "Sveitinni milli sanda".  Í faðmi ægifagurrar náttúru bjóðum við upp á notalega gistingu ásamt morgun og kvöldverði. 

Sjá

Gistiheimilið Gerði

Á Gerði er boðið upp á gistingu á tveim hæðum í sérhúsi;  8 x 2ja manna herbergi, 2 x 3ja manna og 1 x eins manns herbergi. Morgunverður og kvöldverður eru í boði. Stutt er í fjöruna en auk þess áhugaverðar gönguleiðir og Þórbergssetur er í 150 m fjarlægð.  

Sjá

Gistihúsið Litla Hof

Gistihúsið Litla Hof

Á Litla-Hofi er boðið upp á gistingu og morgunverð fyrir 20 manns allt árið um kring. Herbergin eru annarsvegar á sérhæð á bænum með sérinngangi og hinsvegar í tveimur vel útbúnum sumarhúsum. Auk þess er boðið upp á gistingu í svefnpokaplássi í samkomuhúsinu Hofgarði. Kjörin staðsetning fyrir þá sem vilja njóta afþreyingar við Vatnajökul og upplifa perlur Öræfasveitar.

Hali í Suðusveit

Hali Suðursveit

Á Hala í Suðursveit er boðið upp á gistingu allt árið um kring fyrir 45 manns í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum. Gisting er í tveimur húsum sem henta vel fyrir fjölskyldur og minni hópa. Hægt er fá uppábúin rúm eða svefnpokapláss. Morgunverður og aðrar veitingar eru í boði í Þórbergssetri. Yfir vetrartímann er hægt að leigja íbúð á Hala samkvæmt samkomulagi frá 1. október – 1. maí.
Merktar gönguleiðir og ratleikur þar sem verk Þórbergs Þórðarsonar koma við sögu eru í nánasta umhverfi.

 

Sjá

Hólmur, gistiheimili

Hólmur á Mýrum

Ferðaþjónustan Hólmi býður upp á gistingu, fjöruferðir og er húsdýragarður á bænum. Gistingin er í hlýlegu endurgerðu húsi með sex tveggja manna herbergjum.Í húsinu er eldunaraðstaða og borðstofa. Á heimili gestgjafa eru einnig tvö tveggja manna herbergi.  Boðið er upp á morgunverð á heimili gestgjafa og einnig kvöldverð ef pantað er fyrirfram.

Sjá

Smyrlabjörg

Hótel Smyrlabjörg í Suðursveit

Velbúið reyklaust sveitahótel, með 44 björtum og vel útbúnum tveggja og þriggja manna herbergjum með baði í flokki IV. Ágætis aðstaða fyrir fatlaða. Hárþurrkur og sjónvörp eru á öllum herbergjum. Í sameiginlegu rými er sími og þráðlaust internet. Yfir sumartímann er boðið upp á stórkostlegt kvöldverðarhlaðborð, sem saman stendur af tugum heimagerða rétta sem útbúnir eru úr úrvals hráefni úr Austur – Skaftafellssýslu, ríki Vatnajökuls. En einnig er matsala opin yfir daginn.

Sjá

Skálafell I í Suðursveit

Skálafell I í Suðursveit

Í Skálafelli er boðið upp á gistingu í eins og tveggja manna herbergjum með aðgangi að snyrtingu og setustofu. Einnig eru 6 herbergi með baði í sérhúsi. Skálafell er um miðja vegu milli Hafnar og Jökulsárlóns og þaðan eru um 600 metrar að þjóðvegi 1. Margar fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica