Beint í leiðarkerfi vefsins.
Árnanes býður upp á gistingu fyrir 40 manns í 18 herbergjum. Herbergin eru í fimm aðskildum húsum, vel búin og rúmgóð.
Í Árnanesi er veitingasalur sem tekur 40 manns í sæti og er þar lögð áhersla á sjávarrétti og hefðbundinn íslenskan mat.
Í Árnanesi er boðið upp á hestaferðir fyrir alla fjölskylduna.
Brekka í Lóni er 30km austan við Höfn. Boðið er uppá gistingu í 4 tveggja manna herbergjum með sér baði. Morgunmatur í boði og einnig eldunaraðstaða ef óskað er. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar og gönguleiðir við allra hæfi í næsta nágrenni auk hinna rómuðu Lónsöræfa.
Á Brunnhóli er boðið upp á gistingu í sérhúsi í 20 tveggja og þriggja manna velbúnum herbergjum, m.a. með sjónvarpi og hárþurrku og öll með sér baði nema tvö. Sérbúin herbergi fyrir fatlaða. Reyklaust hús. Í húsinu er gott sameiginlegt eldhús og setustofa. Símasjálfsali og aðgangur að tölvu og þráðlausu interneti. Veitingasalur opinn allan daginn þar sem hægt er að kaupa heimagerðan rjómaís, Jöklaís. Kvöld- og morgunverðarhlaðborð er í boði fyrir næturgesti.
Í Dilksnesi er boðið upp á gistingu í tveimur herbergjum með sameiginlegum aðgangi að eldhúsi og baðherbergi, um er að ræða eitt þriggja manna herbergi með 3. rúmum og eitt herbergi með tveimur rúmum og góðri koju. Dilksnes er 4. km frá Höfn og 1.km frá þjóðvegi 1. Ekki er boðið upp á morgunverð.
Á gistiheimilinu „Frost og Funi“ eru 21 herbergi, gestamóttaka með stórri setustofu og rúmgóður matsalur. Á jarðhæð hefur verið opnuð heilsulind fyrir gesti gistiheimilisins. Hof er staðsett í einni fegurstu og sérkennilegustu sveit á Íslandi, "Sveitinni milli sanda". Í faðmi ægifagurrar náttúru bjóðum við upp á notalega gistingu ásamt morgun og kvöldverði.
Á gistiheimilinu Ásgarði á Höfn er boðið upp á gistingu í 36 rúmgóðum herbergjum. Þau eru öll með sér snyrtingu og sjónvarpi. Hægt er að fá eins manns, tveggja manna og tveggja manna herbergi með auka rúmi. Morgunverður í boði. Aðgangur að þráðlausri internettengingu. Frá Ásgarði er glæsilegt útsýni til sjávar og jökla og skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu. Stutt í alla þjónustu.
Gistiheimilið á Bölta í Skaftafelli býður upp á gistingu og morgunverð fyrir 18 manns, bæði í svefnpokagistingu og uppábúnum rúmum. Gisting í glæsilegu umhverfi innan þjóðgarðs. Opið frá mars-október.
Á Gerði er boðið upp á gistingu á tveim hæðum í sérhúsi; 8 x 2ja manna herbergi, 2 x 3ja manna og 1 x eins manns herbergi. Morgunverður og kvöldverður eru í boði. Stutt er í fjöruna en auk þess áhugaverðar gönguleiðir og Þórbergssetur er í 150 m fjarlægð.
Velbúið gistiheimili við Höfn. Eins manna og 2ja - 3ja manna herbergi, tvö baðherbergi og tvær seturstofur með sjónvarpi. Fullbúið eldhús. Frábær fjalla- og jöklasýn. Vegalengd að Jökulsárlóni 71 km., að Jöklaseli 41 km. Frábærar gönguleiðir í nágrenninu
Hoffell er innsti bærinn í Nesjum í Hornafirði, um 19 km. vestan við Höfn og 3 km. frá þjóðvegi nr. 1. Staðurinn er umvafinn stórbrotinni náttúru sem einkennist af miklum andstæðum og hrikaleika, allt frá flatri víðáttu til hárra fjalla, frá ísköldu jökulvatni til nýtanlegs jarðhita og frá ægilegum jökli til svartra sanda. Gistiheimilið er opið allan ársins hring. Heitar náttúrulaugar standa gestum til boða. Í Hoffelli eru einnig í boði skoðunarferðir með leiðsögn á fjórhjólum og siglingar á hjólabátum á lóni Hoffellsjökuls.
Á Hala í Suðursveit er boðið upp á gistingu allt árið um kring fyrir 45 manns í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum. Gisting er í tveimur húsum sem henta vel fyrir fjölskyldur og minni
hópa. Hægt er fá uppábúin rúm eða svefnpokapláss. Morgunverður og aðrar
veitingar eru í boði í Þórbergssetri. Yfir
vetrartímann er hægt að leigja íbúð á Hala samkvæmt samkomulagi frá 1. október
– 1. maí.
Merktar gönguleiðir og ratleikur þar sem verk Þórbergs Þórðarsonar koma við sögu eru í nánasta umhverfi.
Ferðaþjónustan Hólmi býður upp á gistingu, fjöruferðir og er húsdýragarður á bænum. Gistingin er í hlýlegu endurgerðu húsi með sex tveggja manna herbergjum.Í húsinu er eldunaraðstaða og borðstofa. Á heimili gestgjafa eru einnig tvö tveggja manna herbergi. Boðið er upp á morgunverð á heimili gestgjafa og einnig kvöldverð ef pantað er fyrirfram.
Hvammur er vinalegt gistiheimili á skemmtilegum stað við höfnina. Þar er boðið upp á gistingu í uppábúnum rúmum og svefnpokaplássi. Öll herbergin eru með sjónvarpi og þvottaaðstaða er á gistiheimilinu. Stutt í alla þjónustu.
Í Lækjarhúsum er gisting fyrir allt að 16 manns. Boðið er uppá morgunverð og kvöldverð. Á bænum eru hestar, kindur, kýr, hænsni, endur og hundur. Fallegar merktar gönguleiðir eru í nágrenninu. Góð staðsetning fyrir skoðunarferðir við og uppá Vatnajökul. Einnig er hægt að panta sérferðir, t.d. fjöruferðir eða lengri jeppaferðir að ósk hvers og eins.
Í Skálafelli er boðið upp á gistingu í eins og tveggja manna herbergjum með aðgangi að snyrtingu og setustofu. Einnig eru 6 herbergi með baði í sérhúsi. Skálafell er um miðja vegu milli Hafnar og Jökulsárlóns og þaðan eru um 600 metrar að þjóðvegi 1. Margar fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu.
Ríki Vatnajökuls ehf. | Nýheimum, Litlubrú 2 | 780 Hornafirði | TEL +354 470 8084 | GSM +354 896 7084 | info@rikivatnajokuls.is