Svefnpokagisting

Nokkrir ferðaþjónustuaðilar í ríki Vatnajökuls bjóða upp á svefnpokagistingu.  Ýmist er um að ræða herbergi með rúmum, smáhýsi á tjaldstæðum eða gistingu á dýnum í sal.  Oftast er jafnframt í boði eldhús til afnota fyrir gesti.


Svefnpokagisting - Svefnpokapláss

farfugl

Farfuglaheimilið Nýibær ehf

Á farfuglaheimilinu Nýjabæ er boðið upp á gistingu í 33 rúmum sem eru í tveggja til sex manna herbergjum. Þar af eru tvö tveggja manna herbergi með baði auk þess sem tvö baðherbergi eru sameiginleg (eitt á hvorri hæð). Boðið er upp á svefnpokagistingu auk þess sem hægt er að leigja sængurver og fá útvegaðar sængur. Hægt er að fá uppábúin rúm en þau þarf að panta með fyrirvara. Í húsinu er eldhús, sjónvarpsherbergi, reiðhjólageymsla og þvottaaðstaða fyrir gesti. Boðið er upp á morgunverð fyrir hópa. Farfuglaheimilið er vel staðsett í miðju bæjarins þar sem stutt er í alla þjónustu.

Vagnsstaðir

Farfuglaheimilið Vagnsstöðum

Á farfuglaheimilinu Vagnsstöðum eru í boði 7 herbergi, öll með handlaug. Góð eldunaraðstaða er fyrir gesti og sameiginlegt rými og einnig eru 3 smáhýsi. Á Vagnsstöðum er einnig tjaldstæði með góðri hreinlætisaðstöðu. Farfuglaheimilið er í fallegu umhverfi, stutt bæði til fjalla og niður að strönd þar sem er mikið fuglalíf. Góðar gönguleiðir eru til fjalla og  hægt er að kaupa eða leigja afnot af gönguleiðakorti, ásamt því að seld eru þar veiðileyfi. Farfuglaheimilið er vel staðsett fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við og á Vatnajökli, og þaðan er boðið er upp á 4-5 klst. jeppa- og vélsleðaferðir á jökulinn með Jöklajeppum. Skaftafell 85 km. og Jökulsárlón 30 km.

Gistiheimilið Bölti

Gistiheimilið Bölta

Gistiheimilið á Bölta í Skaftafelli býður upp á gistingu og morgunverð fyrir 18 manns, bæði í svefnpokagistingu og uppábúnum rúmum. Gisting í glæsilegu umhverfi innan þjóðgarðs. Opið frá mars-október.

Vesturhús

Gistiskálinn Vesturhús

Vesturhús er kósí skáli á láglendi. Húsið er útbúið með 6 herbergjum fyrir svefnpokagistingu í eins til tveggja manna kojum, stóru eldhúsi (útbúið öllum almennum eldhúsáhöldum og gasgrilli) og borðstofu ásamt setustofu. Í húsinu eru 2 baðherbergi með sturtum og wc. Síminn í Vesturhúsi er 474 1200. Úr húsinu er einungis hægt að hringja í 112 og umsjónarmenn húsins, sem eru ekki búsettir í sama húsi. Handklæði og rúmfatnað þurfa gestir að koma með sjálfir.

Sjá meira

Hótel Edda Nesjaskóla

Hótel Jökull/Hótel Edda Nesjum

Hótel Edda Nesjum er við þjóðveg 1, um 8 km. sunnan við Höfn. Þaðan er glæsilegt útsýni til jökla.

Þar er boðiðupp á gistingu í 6 herbergjum með baði og 38 herbergjum með handlaug, auk þess 8 herbergi með svefnpokapláss í rúmum og sal fyrir 10 manns.
Á hótelinu er veitingastaður þar sem boðið er upp á matseðil/sjávarréttahlaðborð á kvöldin. Veitingastaðurinn tekur 85 manns en einnig er fundarherbergi á hótelinu.

Sjá meira

Hrollaugsstaðarskóli í fögru umhverfi

Hrollaugsstaðir gisting

Á Hrollaugsstöðum er boðið upp á gistingu í skólahúsnæði yfir sumartímann. Hægt er að velja um gistingu í uppábúnu rúmi eða í svefnpokagistingu. Þar að auki eru í boði þrjú 2-4 manna smáhýsi og tjaldstæði með snyrtiaðstöðu. Stendur við þjóðveg 1 og er ákjósanleg staðsetning fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við Vatnajökul.

Sjá meira

Lambhús

Lambhús

 

Við bæinn Lambleiksstaði á Mýrum (30 km vestan við Höfn) eru fjögur ný smáhýsi. Í þremur smáhýsum eru svefnpokapláss fyrir 4 í tvíbreiðri koju. Í einu smáhýsi eru svefnpokapláss fyrir 6 manns, fjögur pláss í tvíbreiðri koju og tvö í svefnsófa.Samtals eru gistipláss fyrir 18 manns í rúmi. Einnig er hægt að fá aukadýnu inní hús.Tjaldstæði liggur norðanvert við bæinn en þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla Vatnajökuls og fjallahrings Hornafjarðar.

Sjá meira

Stafafell í Lóni

Stafafell í Lóni

Stafafell í Lóni er gamall kirkjustaður.  Þar er í boði gisting í gömlu íbúðarhúsi sem hefur verið endurbyggt í upprunalegri mynd.  Þar er vel búið eldhús, matsala og þvottaaðstaða fyrir gesti. Að auki er tjaldstæði með snyrti- og eldunaraðstöðu. Náttúran umhverfis Stafafell er margbrotin.

Sjá meira

Séð heima að Svínafelli í Öræfum

Svínafell

Í Svínafelli er boðið upp á svefnpokagistingu í 6 smáhýsum og 6 herbergjum. Í hverju smáhýsi er svefnpláss fyrir fjóra í tveimur tveggja manna kojum. Vaskur og borðbúnaður fyrir fjóra er í hverju húsi, en auk þess hafa allir gestir frjálsan aðgang að þjónustuhúsi.  Þar er einnig salernisaðstaða og tvær sturtur. Í Svínafelli er einnig boðið upp á  tjaldsvæði fyrir 100-150 manns og þvottaaðstöðu.
Hringlaga útisundlaug með tveimur heitum pottum er í Svínafelli.

Sjá meira

Þjónustumiðstöð tjaldstæði

Tjaldstæðið á Höfn

Þjónustumiðstöð SKG ehf rekur tjaldsvæðið á Höfn. Tjaldsvæðið stendur á fallegum stað í bænum og þaðan er stutt ganga í alla helstu þjónustu. Tjaldsvæðið er rúmgott, góð og mjög snyrtileg aðstaða, aðgangur að rafmagni, interneti og losun fyrir ferðaklósett. Sérhönnuð stæði fyrir húsbíla og húsvagna.

Hjá Þjónustumiðstöð SKG ehf er hægt að bóka í ferðir á Vatnajökul, hvort sem er gönguferðir, jeppa- eða sleðaferðir. Golfvöllur og sundlaug eru í næsta nágrenni og hægt er að fá golfsett leigð á tjaldsvæðinu.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica