Tjaldstæði

Góð tjaldstæði er að finna víða í Austur-Skaftafellsýslu. Mismunandi er hvaða kröfur viðkomandi gerir þegar kemur að vali á gistingu eða eftir hverju er verið að sækjast. Sama á við þegar kemur að vali á tjaldstæði. Sumir vilja hafa fólk í kring um sig, meðan aðrir vilja vera í næði úti í guðs grænni náttúrunni. Ef þú ert að skipuleggja tjaldferðalag eru fjölbreyttir valkostir í boði.


Tjaldstæði - Tjaldstæði

Hrollaugsstaðarskóli í fögru umhverfi

Hrollaugsstaðir gisting

Á Hrollaugsstöðum er boðið upp á gistingu í skólahúsnæði yfir sumartímann. Hægt er að velja um gistingu í uppábúnu rúmi eða í svefnpokagistingu. Þar að auki eru í boði þrjú 2-4 manna smáhýsi og tjaldstæði með snyrtiaðstöðu. Stendur við þjóðveg 1 og er ákjósanleg staðsetning fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við Vatnajökul.

Sjá meira

Lambhús

Lambhús

 

Við bæinn Lambleiksstaði á Mýrum (30 km vestan við Höfn) eru fjögur ný smáhýsi. Í þremur smáhýsum eru svefnpokapláss fyrir 4 í tvíbreiðri koju. Í einu smáhýsi eru svefnpokapláss fyrir 6 manns, fjögur pláss í tvíbreiðri koju og tvö í svefnsófa.Samtals eru gistipláss fyrir 18 manns í rúmi. Einnig er hægt að fá aukadýnu inní hús.Tjaldstæði liggur norðanvert við bæinn en þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla Vatnajökuls og fjallahrings Hornafjarðar.

Sjá meira

Stafafell í Lóni

Stafafell í Lóni

Stafafell í Lóni er gamall kirkjustaður.  Þar er í boði gisting í gömlu íbúðarhúsi sem hefur verið endurbyggt í upprunalegri mynd.  Þar er vel búið eldhús, matsala og þvottaaðstaða fyrir gesti. Að auki er tjaldstæði með snyrti- og eldunaraðstöðu. Náttúran umhverfis Stafafell er margbrotin.

Sjá meira

Séð heima að Svínafelli í Öræfum

Svínafell

Í Svínafelli er boðið upp á svefnpokagistingu í 6 smáhýsum og 6 herbergjum. Í hverju smáhýsi er svefnpláss fyrir fjóra í tveimur tveggja manna kojum. Vaskur og borðbúnaður fyrir fjóra er í hverju húsi, en auk þess hafa allir gestir frjálsan aðgang að þjónustuhúsi.  Þar er einnig salernisaðstaða og tvær sturtur. Í Svínafelli er einnig boðið upp á  tjaldsvæði fyrir 100-150 manns og þvottaaðstöðu.
Hringlaga útisundlaug með tveimur heitum pottum er í Svínafelli.

Sjá meira

Þjónustumiðstöð tjaldstæði

Tjaldstæðið á Höfn

Þjónustumiðstöð SKG ehf rekur tjaldsvæðið á Höfn. Tjaldsvæðið stendur á fallegum stað í bænum og þaðan er stutt ganga í alla helstu þjónustu. Tjaldsvæðið er rúmgott, góð og mjög snyrtileg aðstaða, aðgangur að rafmagni, interneti og losun fyrir ferðaklósett. Sérhönnuð stæði fyrir húsbíla og húsvagna.

Hjá Þjónustumiðstöð SKG ehf er hægt að bóka í ferðir á Vatnajökul, hvort sem er gönguferðir, jeppa- eða sleðaferðir. Golfvöllur og sundlaug eru í næsta nágrenni og hægt er að fá golfsett leigð á tjaldsvæðinu.

Þjónustumiðstöðin í Skaftafelli

Þjóðgarðurinn í Skaftafelli

Í Skaftafelli er boðið upp á gistingu á stóru tjaldstæði með hreinlætisaðstöðu. Tjaldsvæðið er rúmgott og sérstakt svæði er ætlað fyrir húsvagna og svefnbíla. Bílastæði eru við tjaldsvæðið og frá því liggja gönguleiðir um þjóðgarðinn. Tjaldsvæðið er opið frá 1. maí til 30. september. Yfir sumartímann er hægt að fá léttar veitingar í þjónustumiðstöðinni og helsut nauðsynjar tjaldbúans

Sjá meira


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica