Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í Hafnarbúðinni er boðið upp á fjölbreyttan matseðil sem samanstendur m.a. af hamborgurum, breiðlokum, duggum, ýmsum smáréttum og vinsælum djúpsteiktum fiski. Þar er einnig sælgæti, drykkir, tímarit og fleira á boðstólnum. Hafnarbúðin er staðsett í hjarta bæjarins við höfnina og þaðan er skemmtilegt að fylgjast með lífinu á bryggjunni. Opnunartími 25. maí til 1. september 8:00-23:30. 2. september til 24. maí 9:00-22:30
Bensínstöð með góðri þvottaaðstöðu, verslun með m.a. helstu matvörur, grill og skyndibita.
Kokkur býður uppá hamborgara, samlokur og sælkerahumarsúpu úr staðbundnu hráefni beint í bílinn, rútuna eða í lautarferðina undir berum himni á Höfn í Hornafirði.
Söluskálinn er staðsettur við fjölförnustu gatnamótin á Höfn. Boðið er upp á almennt úrval af vörum söluskála svo sem sælgæti, samlokur, pylsur, ís, smávörur, grillvörur, bensín og olíu.
Söluskáli Skeljungs við Freysnes er við þjóðveginn rétt fyrir neðan Hótel Skaftafell. Á leiðinni um svæðið er kjörið að stoppa og setja eldsneyti á bílinn ásamt því að fá sér eitthvað svalandi að drekka. Þar er hægt að fá helstu nauðsynja og matvörur. Þar er einnig rekinn veitingaskáli þar sem hægt er að fá íslenskan heimilismat, kaffi og kaffibrauð.