Útsýnisflug

Loftmynd af Höfn
Loftmynd af Höfn
Höfn

Eins og fuglinn fljúgandi

Hvern hefur ekki dreymt um að fljúga um loftin blá frjáls eins og fugl. Stórbrotið landslagið í ríki Vatnajökuls á Suðausturlandi tekur á sig alveg nýja mynd þegar það er skoðað úr lofti. Víðáttur Vatnajökuls og Atlantshafið  mynda ramma um sköpunarverkið, þar sem andstæður kallast á. Hvítur jökullinn og svartir sandar, grónar hlíðar og gróðurlausar skriður og aurar.

Tvö flugfélög bjóða upp á útsýnisflug í Ríki Vatnajökuls. Flugfélagið Ernir býður upp á útsýnisflug frá Hornafjarðarflugvelli yfir sumarmánuðina. Frekari upplýsingar er að finna hér. Flugfélagið Atlantsflug býður upp á útsýnisflug frá Skaftafelli yfir sumarmánuðina. Frekari upplýsingar er að finna hér.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica