Samgöngur

Samgöngur

Veðurfar skapar þær aðstæður að aðgengi til og frá Hornafirði er gott allan ársins hring hvort sem komið er akandi eða fljúgandi. Snjólétt er í Ríki Vatnajökuls og vegir því oftast greiðfærir allt árið.  Ágætis flugsamgöngur eru til Hornafjarðar.

 

Flug

Árnanesflugvöllur stendur rétt fyrir utan Höfn. Flugfélagið Ernir annast áætlunarflug til Hornafjarðar.  Hér er hægt að nálgast flugáætlun.

Rútur

Fastar áætlunarferðir eru milli Reykjavíkur og Hafnar allt árið. Að sumri er ekið alla daga en þrisvar í viku yfir veturinn.  Ferðir eru til Egilsstaða alla daga yfir sumarið. Einnig til og frá Reykjavík um fjallabaksleið með endastöð í Skaftafelli.

Vatnajökull Travel býður upp á yfir sumarið upp á áætlunarferðir á Skálafellsjökul og að Jökulsárlóni www.vatnajokull.is  Einnig stóra og smáa hópferðabíla.


Bílar og fólk - Trex

Texti af núverandi heimasíðu

 ath að þetta sé rétt á öllum vefsvæðum innan vefs, líka innan www.rikivatnajokuls.is


Vatnajökull  Travel

Vatnajökull Travel aðstoðar við skipulagningu á árangursríkri og ógleymanlegri dvöl í stórkostlegu umhverfi Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu.  Boðið er upp á margvíslega ferðapakka  allt árið, m.a. norðurljósaskoðun yfir veturinn.  Yfir sumarmánuðina eru í boði áætlunarferðir upp á Vatnajökul. sjá www.vatnajokull.is  

Vatnajökull Travel er með stóra og smá hópferðabíla og sinnir allri almennri akstursþjónustu.  Einnig með umboð á Höfn fyrir Hertz bílaleiguna.  Býður auk þess upp á bílaþvott og tjöruþvott, dekkjaviðgerðir og er með umboð fyrir dekk frá Sólningu.


Bílaleigur

Nokkrar bílaleigur eru með umboð á Höfn.


Bílaleiga Akureyrar

Jón  Ingi Björnsson er umboðsaðili fyrir Bílaleigu Akureyrar á Höfn í Hornafirði.

Sími: 840 – 6071

 

Hertz bílaleiga

Vatnajökull Travel er umboðsaðili á Höfn í Hornafirði fyrir Hertz bílaleigu.  Nánari upplýsingar er að finna á www.vatnajokull.is  eða í síma894 1616.

 

Avis

Umboð fyrir bílaleiguna Avis er á N1 bensínstöðinni við Vesturbraut á Höfn.  Sími 860 2440.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica