Fréttir
Flugeldasýningin í Jökulsárlóni verður laugardaginn 28.ágúst.
Í fyrra mættu yfir eittþúsund og fimmtíu manns á flugeldasýninguna, nú verður hún færð aftur um tvær vikur.
Ákveðið var að halda viðburðinn í lok ágúst þar sem meira gistirími er laust þá en um miðjan ágúst. Gististaðirnir í Sveitafélaginu Hornafirði munu að þessu sinni styrkja Björgunarsveitina sem samsvarar einni til tveimur gistinóttum og styðja því þessa breytingu en stefnt er að því að festa þessa dagsetningu í sessi. Björgunarsveit Hornafjarðar ásamt stafsfólki Jökulsárlóns hefur veg og vanda af framkvæmd flugeldasýningarinnar sem er liður í fjármögnun björgunarsveitarinnar. Inngangseyrir er 1000.-krónur og gengur óskiptur til hennar. Ríki Vatnajökuls mun sjá um kynningu á viðburðinum en í fyrra komu fréttamenn frá RÚV svo það eru til upptökur af þessum einstaka viðburði, auk þess komu blaðamenn og ljósmyndarar frá helstu miðlum landsins. Einnig er verið að skoða hvort hægt sé að tengja aðra viðburði við flugeldasýninguna í ár en einnig er áhugi fyrir því að aðrir listviðburðir gætu tengst henni því margt fólk leggur leið sína í Jökulsárlónið til þess að fylgjast með. Staðsetning flugeldasýningarinnar í þessar mögnuðu umgjörð gerir viðburðinn einstakan á heimsmælikvarða og hefur alla burði til þess að laða að fjölda fólks segir Rósa Björk framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


