Fréttir

Upplýstir ísjakar baðaðir í litum og birtu

26.08.2011

flugeldar
Flugeldasýning
Flugeldasýning á Jökulsárlóni

Flugeldasýningin á Jökulsárlóni verður laugardagskvöldið 27. ágúst klukkan 23. Flugeldasýningin er árlegur viðburður og er þetta í tólfta sinn sem sýningin er haldin. Fjöldi áhorfenda hefur farið stigvaxandi með ári hverju og í fyrra komu 1300 manns til að njóta sýningarinnar.

Uppruna flugeldasýningarinnar má rekja til uppskeruhátíðar starfsfólks við Jökulsárlón, og smám saman vatt hún upp á sig. Undirbúningur fyrir sýninguna hefst fyrr um daginn þegar menn á gúmmíbáti fara um lónið og raða 150 friðarkertum á ísjaka. Um kvöldið er kveikt á kertunum og síðan skotið upp flugeldum á nokkrum stöðum á lóninu. Upplýstir ísjakarnir eru baðaðir í litum og birtu frá stórkostlegri flugeldasýningu í magnaðri umgjörð náttúrunnar sem skapar einstaka upplifun fyrir áhorfendur.

Ferðaþjónustan Jökulsárlóni og Björgunarfélag Hornafjarðar standa að sýningunni í samstarfi við Ríki Vatnajökuls. Aðgangseyrir er 1000 krónur og frítt inn fyrir 12 ára og yngri.
Allur ágóði rennur til Björgunarfélags Hornafjarðar.

Flugeldasýningin á Facebook.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica