Þrír bláir, þrír grænir og einn rauður
Nú líður senn að sveitarstjórnarkosningum og menn strax byrjaðir að velta fyrir sér úrslitum hér í sveitarfélaginu. Af því tilefni leitaði vefurinn til spákonunnar Möggu Péturs á Granstöðum í Borgarfirði-Eystri en það var einmitt hún sem spáði fyrir efnahagshruninu og eldgosinu í Eyjafjallajökli. "Komið þið sæl og blessuð hjá Ríki Vatnajökuls, ég átti von á því að þið mynduð koma, og þið viljið vita hvernig úrslit sveitastjórnarkosningarnar verða hjá ykkur, þetta vissi ég". Fréttaritarinn var leiddur inn í dökkt herbergi og að borði sem var í því miðju, á borðinu var kristalkúla. "Sestu hér og við skulum sjá hvað spádómskúlan sýnir okkur og viti menn hér sé ég sjö hesta á þeysireið til Hafnar með miklum hófaþyt, hestarnir er mjög æstir og löðursveittir. Einn þeirra er rauður, þrír bláir og þrír grænir. Ég sé þá nú koma að bæjarmörkunum, sá rauði stoppar en þeir bláu og grænu fara þétt saman inn í bæinn sem ein fylking. Ég sé einnig álf í lopapeysu sem bíður spenntur eftir þeim því hann ætlar að ríða þeim öllum. Hér endar það sem kristalkúlan segir mér og verður ykkur að túlka."
Fréttaritarinn þakkaði fyrir sig og kvaddi spákonuna.




