Nú styttist óðum í styrktartónleika hljómsveitar Hauks sem verða í Sindrabæ föstudagskvöldið 26.september. Hljómsveitin var í æfingabúðum alla helgina og var hvergi slegði af. Mikið er lagt í tónleikana til að þeir verði sem allra bestir s.s.gott hljóð, flotta lýsingu og myndvarpa. Á dagskrá tónleikana má finna lög eftir hljómsveitarmeðlimi, Stones, Bítlana, Eric Clapton, Roxett, Cliff Richard, Tinu Turner, Janis Joplin ofl., ofl. Sex söngvarar sem sungið hafa með hljómsveitinni koma fram og voru þeir í góðum fíling um helgina. Þá koma líka góðir gestir að austan og sunnan og taka lagið.
Lesa meira