Árleg ferð Öræfinga út í Ingólfshöfða til eggjatöku, fór fram sunnudaginn 9.maí. Veðrið var frábært, fuglalíf sjaldan betra og mikið af langvíueggjum Alls voru týnd um 1800 egg og er það helmingi betri fengur en á síðasta ári. Ragnar Frank Þjóðgarðsvörður í Skaftafelli var með í eggjatökuferðinni og segir hann að ferðin hafi verið söguleg og má segja að hún hafi markað tímamót nú á þessum jafnréttis tímum, því nú sigu tveir kvenmenn niður í bjargið, og það er örugglega í fyrsta sinn sem að finnsk kona hefur sigið í Ingólfshöfða, en það var Hanna vinnukona frá Svínafelli. Elsti maðurinn í hópnum Magnús Lárusson, frá Svínafelli, taldi þó að það væri nú ekki öruggt, því Ingólfur Arnarson, landnámsmaður hefði örugglega haft með sér duglega finnska konu þegar hann kom í land 874.
Lesa meira