90 ára afmælið á SkjáVarpi gamlárskvöld
The same procedure as every year
Eins og á síðasta gamlárskvöldi mun 90 ára afmælið eða "Dinner for one" verða sýnt á SkjáVarpi og hefst þátturinn kl.22:00. Hefð er fyrir því að sýna þennan stutta breska svarthvíta leikþátt um hver áramót í Þýskalandi, Danmörku og nokkrum öðrum Evrópulöndum. Leikþátturinn fjallar um hefðarfrúna Miss Sophie sem er að halda upp á 90 ára afmælið sitt. Vandamálið er að allir gestirnir í afmælinu eru ímyndaðir "vinir" sem allir hafa farið yfir móðuna miklu. En Miss Sophie heldur sínu striki og býður þeim til veislu á hverju ári og lætur eins og þeir séu allir mættir. Eins og sagt er í þeim löndum sem hafa haft þáttinn til sýningar um hver áramót,,, það eru engin áramót nema heyra þjóninn James og Miss Sophie segja "The same procedure as last year, Madam? - The same procedure as every year, James."
Nú er bara að setjast fyrir framan Sjónvarpið og horfa á þennan sprenghlægilega gamanþátt sem er góð upphitun fyrir áramótaskaupið í Sjónvarpinu. Munið "gamlárskvöld Skjávarp kl.22:00"





Skrifa athugasemd