Útsendingar Digital Íslands hefjast á Höfn og nágrenni um miðjan mars
Fyrirtækið Mamma mun sjá um að koma nýju myndlyklunum til áskrifenda og leiðbeina um stillingu á þeim. Ekki er ljóst enn hvort lokað verður fyrir gömlu myndlykla Stöðvar 2 sem nú eru í notkun en að sögn Ragnars vaktstjóra hjá 365 hefur verið slökkt á þeim á ýmsum stöðum þegar kveikt hefur verið á digital útsendingunni. Í áskriftarpakkanum eru eftirtaldar stöðvar sendar út um dreifikerfi Digital Ísland: RÚV, Stöð 2, Stöð 2 bíó, Sirkus, SÝN, SÝN Extra og Skjár einn. Erlendu stöðvarnar eru einungis á suðvestur-horni landsins þar sem örbylgjusendingar eru.
Þeir sem áhuga hafa á að fá digital-myndlykil og gerast áskrifendur geta haft samband við þjónustufulltrúa Stöðvar 2 í síma 478-1249 eða 690-0613.





Skrifa athugasemd