Júní

Mathúsið

Mathúsið, nýr skyndibitastaður opnar í dag á Höfn - 28.06.2007 Júní

Í dag var formleg opnun á skyndibitastaðnum Mathúsinu við Víkurbraut. Mathúsið sem er söluturn og stendur það á horni Víkurbrautar og Bugðuleiru. Núverandi eigendur keyptu húsnæðið síðla árs 2006 og hafa breytingar og endurbætur staðið yfir síðan þá. Breyting var gerð á allri eldunaraðstöðu og eru nú tvö eldhús, en að sögn Lars Jóhanns Andréssonar annars eiganda Mathússins þá skiptir það miklu máli að hafa tvö eldhús þegar mikið er að gera. Pizzugerðin fer fram í innra eldhúsinu en hamborgarar, samlokur, pítur og annað er unnið í fremra eldhúsinu Flestum tækjum hefur verið skipt út fyrir ný. Í sumar verður opið frá morgni til kvölds og fram á nótt þegar eitthvað verður um að vera á staðnum svo sem böll og aðrar skemmtanir sem standa fram eftir. Matseðillin er ekki af verri endanum en þar má finna allt það helsta í skyndibitafæði ásamt sælgæti og snakki. Lesa meira
 
Þýskalandsferð Kennakórsins 2007

Kvennakór Hornafjarðar hélt tónleika í Hamborg - 28.06.2007 Kvennakór Hornafjarðar

Þann 12. júní sl. hélt kvennakór Hornafjarðar í ferðalag til Þýskalands. Flogið var til Kaupmannahafnar en þar beið rúta sem flutti kórkonur og þeirra fylgifiska til Soltau í norður Þýskalandi. Margt var bardúsað í þessari ferð eins og t.d. var farið í skemmtilegan garð þar sem fólk manaði hvert annað í að fara í rússíbana og fleiri tæki þar sem fólk snéri á hvolfi og fór alskonar slaufur og krúsídúllur. Var um það talað meðal þeirra sem ekki tóku þátt í þessum háskaferðum að það vantaði greinilega eitthvað í þetta fólk. Lesa meira
 
Humarhöfnin

Humarhöfnin, nýr veitingastaður opnar á Höfn - 26.06.2007 Júní

Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem aka Hafnarbrautina að mikið hefur verið um að vera þar síðustu vikurnar en þar hefur verið unnið hörðum höndum við að undirbúa opnun nýs veitingarstaðar sem heitir Humarhöfnin. Veitingarstaðurinn opnar formlega fimmtudaginn 28. júní eða rétt fyrir hina árlegu humarhátíð Hornfirðinga. Veitingahúsið sérhæfir sig í réttum þar sem notast er við svæðisbundið hráefni en með aðaláherslu á leturhumar (langoustine). Starfsemin verður byggð á fáum réttum þar sem vöruþróun skipar stóran sess þar á meðal þróun og aðlögun á réttum úr heilum og lifandi humri að íslenskum aðstæðum. Til þess hafa eigendur fengið til samstarfs við sig sérfræðing og ráðgjafa í gastrónómíu (listinni að búa til og njóta matar og drykkjar), chef Jacques Dupont sem á fyrirtækið Autremer og er kennari í gastrónómíu við háskólann í Boulogne Sur Mer. Lesa meira
 
Humarhátíð

Skrúðgangan á Humarhátíð - 26.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Nú styttist í hina árlegu Humarhátíð okkar Hornfirðinga. Hátíðin fer fram helgina 29. júní – 1. júlí. Kvennakór Hornafjarðar ætlar að taka forskot á sæluna með því að halda þjóðakvöld í Sindrabæ fimmtudaginn 28. júní. Verður vafalaust jafn mikið stuð þar og á spænska kvöldinu í fyrra sem kvennakórinn hélt þá í Sindrabæ. Jafnframt verður lifandi tónlist á Víkinni sama kvöld. Skrúðganga Humarhátíðarinnar leggur af stað frá tjaldstæðinu föstudagskvöld kl. 20:00 og verður stefnan sett á bryggjuna líkt og undanfarin ár. Ýmis faratæki frá Menningarmiðstöðinni verða í fararbroddi skrúðgöngunnar að þessu sinni. Stefnt er að því að hátíðin verði formlega sett kl. 20:30 á bryggjunni og fellur það í hlut Bjargar Erlingsdóttur, framkvæmdastjóra Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, að setja hátíðina með formlegum hætti. Að lokinni setningu tekur við skemmtidagskrá á sviði, markaðstemning, leiktæki og útidansleikur svo eitthvað sé nefnt. Lesa meira
 
Stemning_a_Humarhatid_2003

Humarhátíð og 110 ára afmæli Hafnar - 23.06.2007 Humarhátíð Fréttir

Líkt og flestir eflaust vita þá verður þetta viðburðaríkt sumar á Hornafirði. Nægir þar að nefna Unglingalandsmótið sem verður haldið um verslunarmannahelgina. Humarhátíðin verður á sínum stað helgina 29. júní – 1. júlí. Einnig fagnar Sveitarfélagið Hornafjarðar 110 ára afmæli Hafnar og snemma á þessu ári var ákveðið tengja saman dagskrá Humarhátíðar og 110 ára afmælisins. Það ætti því að vera nóg um að vera á Hornafirði þessa helgi og vonandi geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Lesa meira
 
Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna 2007

Flott á fíknar - 22.06.2007 Júní

Stofnfundur forvarnaverkefnisins FLOTT ÁN FÍKNAR var haldinn í bíósal Sindrabæjar fimmtudaginn 21.júní. Þegar hafa 16 unglingar skráð sig í klúbbinn. Það er Ungmennafélag Íslands sem er sér um verkefnið með stuðningi Lýðheilsustöðvar. Verkefnið gengur út á að unglingar gera samning með samþykki foreldra um að halda þær reglur sem gilda í klúbbnum sem er m.a.: Að allir þeir sem eru reyk- og vímuefnalausir og ætla sér að vera það a.m.k. meðan þeir eru í grunnskóla. Klúbbfélagar fá boð um ýmsa skemmtun og/eða afþreyingu nokkrum sinnum á ári sem verður ódýr eða ókeypis. Verði klúbbfélagi uppvís af því að gerast brotlegur við samninginn missir hann af tilboðum og eins við endurtekið brot verður litið svo á að hann ætli sér ekki að vera lengur í klúbbnum. Lesa meira
 
Unglingalandsmót 2007

Margar hendur vinna létt verk - 21.06.2007 Júní

Nú er dagskrá unglingalandsmótsin farin að skýrast. Keppnisgreinar hafa aldrei verið fleiri og því þarf margar hendur til að láta enda ná saman. Ljóst er að Hornfirðingar allir þurfa að leggjast á árarnar til þess að unglingalandsmótið okkar verði sem glæsilegast. Nú er komið að því að safna sjálfboðaliðum, fólki sem tilbúið er að starfa á mótinu sjálfu um verslunarmannahelgina. Margar hendur vinna létt verk. Að mótinu koma á milli 200 og 300 sjálfboðaliðar og hafa sumir þeirra hafið störf nú þegar. Ég vil biðja alla Hornfirðinga sem hafa tök á því að taka þátt í þessum stórviðburði sem unglingalandsmótið svo sannarlega er að senda línu á netfangið usu@hornafjorður.is. Lesa meira
 
Þjóðverjar við tartanlagningu á hlaupabrautina

Tartanlagning á hlaupabrautina hafin - 18.06.2007 Júní

Starfsmenn Rósabergs hafa nú að mestu lokið við sitt verkefni við hlaupabrautina á íþróttavellinum og vinnuflokkur frá Þýskalandi er byrjaður að leggja tartan á brautina og er áætlað að því verki ljúki um 10. júlí. Mikil vinna er við tartanlagninguna og er það svæði sem lagt er á um 4000 fermetrar en vel viðrar til verksins því miklu skiptir að þurrviðri sé og á því er enginn skortur ennþá. Við vildum gjarnan fá vætu á Leirusvæðið og þar sem gróðursetning fer fram segir Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, en svo er svæðið við völlinn þar þurfum við þurrk svo það er erfitt að uppfylla óskir okkar í þessu. Lesa meira
 
17. júní hátíðarhöld á Höfn

Þjóðhátíðardagurinn fór fram með hefðbundnum hætti - 18.06.2007 Júní

Hornfirðingar héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan með hefðbundnum hætti. Safnast var saman á Vesturbrautarplaninu og haldið þaðan eftir Kirkjubrautinni út á hóteltúnið með undirleik Lúðrasveitar Hornafjarðar og fremstir fóru fánaberar á fákum sínum. Á hátíðarsvæðinu flutti lúðrasveitin nokkur lög og Stefán Ólafsson flutti hátíðarávarp. Ávarp fjallkonu flutti Hólmfríður Þrúðmarsdóttir og Denis Cardaklija flutti ávarp nýstúdents. Leikskólakórinn söng og einnig söng Nanna Halldóra Imsland nokkur lög. Þá var tilnefndur íþróttamaður ársins, USÚ 2006, og það var Frans Elvarsson sem þann titil hreppti. Lesa meira
 
Stjórn Ríki Vatnajökuls ehf

40 aðilar hafa skráð sig fyrir hlut í Ríkis Vatnajökuls ehf - 16.06.2007 Júní

Níu umsóknir um starf framkvæmdastjóra Ríkis Vatnajökuls ehf hafa nú borist stjórn félagsins. Fjallað var um umsóknirnar á stjórnarfundi í dag, flestir umsækjendur hafa mikla reynslu á svið markaðsmála og ferðamála sem og háskólamenntun eins og krafist var í auglýsingu. Stjórn félagsins ætlar að fjalla betur um umsóknirnar, en ekki er hægt að segja til um hvenær eða hver verður ráðinn í starfið. Einnig var stjórnin ánægð með það hversu mikill áhugi er á félaginu en 40 aðilar hafa skráð sig fyrir hlut í félaginu. Enn geta einstaklingar og fyrirtæki keypt hlut í félaginu. Lesa meira
 
Heyskapur hafinn

Heyskapur hafinn í Hornafirði - 15.06.2007 Júní

Heyskapur hófst í Grænahrauni í Nesjum í gær,13. júní og er það um hálfum mánuði fyrr en venja er. Spretta er góð þrátt fyrir að lítið hafi verið um vætu sl. mánuð. Vel lítur út með sprettu á korni og eins eru Grænahraunsbændur bjartsýnir á að kartöfluspretta verði góð. Við erum með rúml. 100 hektara tún og mest af því er orðið vel sprottið segir Valdimar Ingólfsson, einnig erum við með tæpa tíu hektara fyrir korn. Byrjað verður að hirða í rúllur á morgun og ef vel gengur ætti fyrri sláttur að vera búinn fyrir miðjan júlí. Við erum með 60 kýr og heilmargt af geldneyti og nýlega fæddust 8 kálfar á einni viku. Valdimar segir kúastofninn aukast ár frá ári og mjólkurframleiðslan sl. ár hafi verið tæpir 300 þúsund lítrar. Lesa meira
 

Íbúar Hornafjarðar almennt ánægðir með þjónustu sveitarfélagsins - 15.06.2007 Júní

Við gerð fjárhagsáætlunar árið 2007 var tekin ákvörðun um framkvæma skoðanakönnun meðal íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar til að gefa þeim tækifæri að tjá sig um ýmsar hliðar sveitarfélagsins. Samningar náðust við Capacent Gallup um framkvæmdina sem hefur gert kannanir um lífsgæði í öðrum sveitarfélögum með sambærilegum hætti. Það auðveldar samanburð við önnur sveitarfélög. Til viðbótar við staðlaðar spurningar frá Capacent var bætt við nokkrum spurningum sem taka á þáttum sem eru sérstakir fyrir samfélagið á Hornafirði. Lesa meira
 
Integrative-Meetings-of-Friends

Evrópuhlaup fatlaðra kemur til Hornafjarðar - 08.06.2007 Júní

Mánudaginn 11. júní nk. nær Evrópuhlaup fatlaðra til Hornafjarðar þegar um 80 þroskaheftir einstaklingar koma hlaupandi inn í miðbæinn á Höfn. Þetta er í 9. sinn sem hlaupið er haldið og eru þátttakendur frá Austurríki, Þýskalandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Póllandi, Rúmeníu og Úkraínu. Hlaupnir hafa verið um 1.000 km frá því átakið hófst árið 1999. Fram til þessa hefur verið hlaupið í Austurríki, Tékklandi, Þýskalandi, Póllandi, Úkraínu, Ungverjalandi, Króatíu, Ítalíu, Grikklandi, Búlgaríu, Rúmeníu, Slóvakíu, Litháen, Lettlandi, Eistlandi, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Svæðið sem þau hafa farið yfir er um 8.050 km. Næsti áfangi í þessu hlaupi er nú þegar hafinn og verður þá farið um Noreg, Svíþjóð, Færeyjar, Ísland og Danmörku. Lesa meira
 
Anna og Ingaló

Golfklúbburinn fær styrk frá Nettó í 3 ár - 08.06.2007 Júní

Nú er að mestu lokið við stækkun á golfvelli Golfsklúbbs Hornafjarðar í Silfurnesi og er hann hinn glæsilegasti, níu holu völlur og par 35. Í gær var skrifað undir samning við Nettó þar sem fram kemur að Nettó styrkir golfklúbbinn um 100 þúsund kr. á ári í þrjú ár. Við erum afskaplega ánægð og þakklát fyrir þennan stuðning segir Ólafía Gísladóttir formaður klúbbsins, þetta verður notað í uppbygginguna á vellinum til að ljúka við þessi smáatriði sem oft eru drjúg s.s. að setja upp teig–skilti og merki, ganga frá garðinum milli nýja hluta vallarins og þess gamla og eins er eftir að snyrta kring um golfskálann. Lesa meira
 
Æfingar hjá sunddeild Sindra

Allir í sund, frítt í sund á morgun - 08.06.2007 Júní

Á morgun verður Hornfirðingum sem og öðrum landsmönnum boðið að stinga sér til sunds vítt og breitt um landið undir yfirskriftinni „Allir í sund“. Það eru Síminn og Sundsamband Íslands (SSÍ) sem standa að þessari sundhátíð og verður frítt í valdar sundlaugar um allt land þennan dag. Alls tekur 41 sundstaður þátt í sundhátíðinni, þar á meðal sundlaugin hér á Höfn og allar sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess sem boðinn er frír aðgangur í laugarnar verður ýmislegt gert til skemmtunar. Á milli kl. 13 og 16 munu ungmenni frá sundfélögunum bjóða upp á sundkennslu og standa fyrir ýmsum leikjum og eiga sundlaugargestir kost á því að vinna sér inn verðlaun með þátttöku í leikjunum. Þá verður spiluð sumartónlist fyrir sundlaugargesti auk þess sem Síminn býður gestum sundlauganna upp á hressingu. Lesa meira
 
Matthildur Ásmundsdóttir í stafgöngu

Með sumrinu bjóðast tækifæri til útivistar og íþróttaiðkunar - 08.06.2007 Júní

Nú hækkar sól ört á lofti og það hlýnar hjá okkur. Náttúran er að taka við sér og veðrið minnir vel á að sumarið er komið. Með sumrinu bjóðast fleiri tækifæri til útivistar og íþróttaiðkunar. Fjölmargt er í boði fyrir þá sem vilja nýta sér það og því vil ég hvetja alla aldurshópa til að gera það. Hægt er að fara í reglulegar gönguferðir, hjóla, synda, fara í fjallgöngur og fleira. Takið með ykkur félaga því félagskapurinn hefur mikið gildi í að stunda hreyfingu og viðhalda henni. Það sem ber hæst þetta sumarið er unglingalandsmótið sem verður haldið hér á Hornafirði um verslunarmannahelgina. Það er margt sem ber þess merki, íþróttastarf er í fullum gangi sem aldrei fyrr, íþróttamannvirki eru að rísa, það mótar fyrir nýjum íþróttavelli og framkvæmdir við sundlaug eru komnar af stað. Síðan hyllir undir að ný knattspyrnuhöll rísi. Það er bjart í íþróttamálunum á næstunni. Lesa meira
 
Netto styrkir Hornfirsk félög

Nettó veitir félagasamtökum á Hornafirði styrki - 07.06.2007 Júní

Í gær var skrifað undir samninga milli Nettó til nokkurra félagasamtaka á Hornafirði þar sem fram kemur að Nettó veiti þessum aðilum fjárstuðning. Þeir sem styrkina hljóta eru UMFÍ vegna unglingalandsmótsins sem haldið verður á Höfn um verslunarmannahelgina í sumar, Golfklúbbur Hornafjarðar, Knattspyrnudeild Sindra, Hestamannafélagið Hornfirðingur og Humarhátíð 2007. Nettó vill láta gott af sér leiða hér á Höfn með að styrkja vænleg verkefni sagði Pálmi Guðmundsson verslunarstjóri, við viljum styðja ungmennafélagið í sambandi við landsmótið í sumar þar sem búist er við miklu fjölmenni og við verðum að vera undir það búin að taka á móti gestum okkar. Golfklúbbur Hornafjarðar hefur unnið öflugt starf við breytingar á sinni aðstöðu og stækkun vallarins og komið honum í flokk fremstu golfvalla landsins. Lesa meira
 
Jóna Eðvalds

Fyrstu síldinni landað - 06.06.2007 Júní

Fyrsti farmurinn af Norsk-Íslensku síldinni barst til Skinneyjar Þinganess fyrir helgina þegar Jóna Eðvalds og Krossey lönduðu um 2000 tonnum af stórri og fallegri síld. Að sögn Björns Traustasonar var mikil áta í síldinni og fer hún öll í bræðslu. Skipin, sem veiða í "tvíburatroll" fengu aflann austan við Langanes en síldina er víða að finna þar sem hún er dreifð um stór svæði. Björn segir að lokið verði við að bræða þennan farm á fimmtudag nk. Unnið er í bræðslunni á tvískiptum vöktum allan sólarhringinn og eru starfsmenn tíu. Lesa meira
 
Ferðafélagið Bergárdalur

Ferðin tók 6 tíma og var mjög skemmtileg - 06.06.2007 Júní

Laugardaginn 26. maí var ganga hjá Ferðafélaginu, um 20 manns fóru í gönguna. Ekið var inn á Bergárdal, gengið bak við Mígandisfoss og síðan gengið meðfram Bergárheiði og við Rimavatn var beygt inn á Laxárdal og gengin Selmýri inn að Selhrauni þar sem Skátakofinn stóð, nú er lítið eftir af honum nema spýtnabrak. Til baka var gengið með bökkum Laxár og þurfti einu sinni að vaða yfir smá kvísl af ánni og var það mjög hressandi að vaða í köldu vatninu. Skoðuðum fornleifa uppgröftin í Hólmi. Ragna Pétursdóttir var með fróðleiksmola um svæðið. Landið er þýft yfirferðar, í upphafi ferðar var frekar kalt og næðingur en birti til og hlýnaði þegar leið á daginn eins og myndirnar sýna. Ferðin tók 6 tíma og var mjög skemmtileg. Lesa meira
 
Hjalti Þór Vignisson

Sumarið verður viðburðaríkt í íþróttasögu Austur-Skaftfellinga. - 05.06.2007 Júní

Íþróttafélög á svæðinu standa fyrir fjölbreyttu starfi í sumar og iðkendur á þeirra vegum verða á ferð og flugi um landið. Þau eru sendiherrar samfélagsins og við verðum að hvetja þau áfram. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Höfn um verslunarmannahelgina. Í tengslum við það mót standa yfir gagngerar endurbætur á Sindravöllum og uppbygging mótókrossbrautar á Ægissíðu. Golfvöllurinn á Silfurnesinu hefur stækkað og breyst og sómir sér vel í hópi glæsilegustu golfvalla landsins. Á næstu misserum verður lokið við nýja sundlaugarbyggingu, reiðhöll og knattspyrnuhús. Þegar þessum framkvæmdum er lokið verður aðstaða hér á Hornafirði til fyrirmyndar og flóran í íþróttalífinu fjölskrúðug. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum sem komið hafa að málum fyrir vel unnin störf. Lesa meira
 
Ásgeir Örn Þorsteinsson

Bæta við tveimur flugferðum á fimmtudögum til Hafnar - 05.06.2007 Júní

Frá og með 1. júní varð aukning á ferðum til Hornafjarðar hjá Flugfélaginu Erni. Félagið ákvað að bæta við tveimur flugferðum á fimmtudögum og ná þannig að auka ferðamannastraum til Hafnar. Sumarið fer vel af stað hjá félaginu og það er bjart framundan. Mikið er um fyrirfram bókanir í dagsferð Ernis sem kallast Splendid Simplicity - The sights and sounds and silences of glaciers. Að sögn Ásgeirs Arnar Þorsteinssonar markarsstjóra flugfélagsins þá hefur félagið fundið fyrir ánægju í sinn garð og vill koma þakklæti á framfæri til Hornfirðinga fyrir góðar viðtökur á þeim tíma sem liðinn er frá því Ernir hófu áætlunarflug til Hafnar. Lesa meira
 
Handraðinn

Handraðinn fluttur á Hafnarbraut 34 - 05.06.2007 Júní

Handraðinn hefur opnað handverkshús á Hafnarbraut 34 við hliðina á Verslun Dóru. Handraðinn hefur undanfarin ár haft aðstöðu á efri hæðinni í Pakkhúsinu við höfnina. Nýja handverksverslunin er rúmgóð og björt með úrval listmuna og allskonar handverks unnið af heimamönnum. Félagar í Handraðanum eru um 50 og hefur þeim fjölgað ár frá ári. Sala handverks er einkum bundin við hefðbundið ferðaþjónustutímabil .Yfir veturinn eru handavinnutímar einu sinni í viku og segir Sigrún Ingólfsdóttir hjá Handraðanum að þar geti félagsmenn leitað aðstoðar þeirra sem lengra eru komnir á hannyrðabrautinni og fengið góð ráð. Lesa meira
 
Sjómannadagurinn 2007

Sjómannadagshátíðarhöldin á Höfn fóru vel fram að vanda - 04.06.2007 Júní

Sjómannadagshátíðarhöldin á Höfn fóru fram með hefðbundnum hætti en hætta varð við siglingu bátanna út fyrir ós vegna veðurs. Þrátt fyrir rigninguna og vindinn á laugardaginn var fjöldi manns mættur við höfnina til að fylgjast með kappróðri og leikjum á bryggjunni. Bestan tíma í kappróðri karla áttu lið Krosseyjar SF og Jónu Eðvalds og í kvennaliði voru sjómannskonur fljótastar. Vésleðakappi hugðist renna sér á sleða sínum yfir höfnina en sú sjóferð varð ekki löng og sökk sleðinn nokkra metra frá landi. Ökumanni var fljótt kippt upp í bát og hafnarverðir á Birni Lóðs náðu sleðanum upp. Lesa meira
 
Sjómannadagsblaðið 2007

Sjómannadagsblað Austurlands 2007 komið út - 01.06.2007 Júní

Þrettándi árgangur Sjómannadagsblaðs Austurlands er kominn út og er blaðið tæpar 90 síður að stærð, prýtt vel á annað hundrað ljósmynda. Sem fyrr eru efnistökin fjölbreytt en í blaðinu er meðal annars rætt við Ólaf Björn Þorbjörnsson, útgerðarmann og skipstjóra á Hornafirði. Á meðal annars efnis í blaðinu er ítarleg frásögn frá því er Goðanes frá Norðfirði strandaði við Færeyjar fyrir hálfri öld, fjallað um nýtt síldarævintýri sem hugsanlega er í vændum og Kristín Steinsdóttir rithöfundur rifjar upp æskuminningu frá uppvaxtarárum hennar á Seyðisfirði. Frumbirt er nýtt ljóð eftir Ingvar Gíslason, fyrrverandi menntamálaráðherra, sagt frá mannskæðum páskabyl á Fáskrúðsfirði, Arnþór Gunnarsson, frá Höfn, fjallar um erlenda athafnamenn á Austurlandi og Már Karlsson á Djúpavogi skrifar um 200 ára kirkjuhald í Papey. Margt fleira er að finna í blaðinu en ritstjóri þess er Kristján J. Kristjánsson, frá Norðfirði. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica