Júní
Mathúsið
Mathúsið
lars Jóhann í lúgunni á Mathúsinu
Mynd 1 af 2
1 2

28.06.2007 Júní

Mathúsið, nýr skyndibitastaður opnar í dag á Höfn

Í dag var formleg opnun á skyndibitastaðnum Mathúsinu við Víkurbraut. Mathúsið sem er söluturn og stendur það á horni Víkurbrautar og Bugðuleiru. Núverandi eigendur keyptu húsnæðið síðla árs 2006 og hafa breytingar og endurbætur staðið yfir síðan þá. Breyting var gerð á allri eldunaraðstöðu og eru nú tvö eldhús, en að sögn Lars Jóhanns Andréssonar annars eiganda Mathússins þá skiptir það miklu máli að hafa tvö eldhús þegar mikið er að gera. Pizzugerðin fer fram í innra eldhúsinu en hamborgarar, samlokur, pítur og annað er unnið í fremra eldhúsinu Flestum tækjum hefur verið skipt út fyrir ný. Í sumar verður opið frá morgni til kvölds og fram á nótt þegar eitthvað verður um að vera á staðnum svo sem böll og aðrar skemmtanir sem standa fram eftir. Matseðillin er ekki af verri endanum en þar má finna allt það helsta í skyndibitafæði ásamt sælgæti og snakki.

Pítur verða nú loks fáanlegar á Hornafirði og verður með tímanum þróaður vel djúsi pítu matseðill sagði Lars Jóhann í lokin. Auk hans þá á Hólmar Kristmundsson skyndibitastaðinn á móti Lars.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica