Undirbúningur fyrir Unglingalandsmótið kominn á lokastig
Eins og bæjarbúar sjá þá er undirbúningur fyrir Unglingalandsmótið kominn á lokastig. Bærinn orðinn fánum skrýddur, búið að reisa tjöld á svæðinu við íþróttavöllinn og hátíðarstemming ríkjandi. Börn og unglingar innan USÚ taka virkan þátt í mótinu og hafa yfir 100 keppendur af svæðinu skráð sig til keppni. Fimmtudaginn 2. ágúst kl. 17:00 verður fundur með öllum keppendum USÚ í Heppuskóla. Á þessum fundi verða afhent gögn sem fylgja mótinu og farið yfir tímaseðla, skráningar og fleira og því mikilvægt að allir keppendur eða foreldrar mæti. Þess má geta að keppendur á landsmótinu fá ýmsar gjafir frá styrktaraðilum mótsins en auk þess fá allir keppendur USÚ gefins vind og vatnshelda treyju sem ætlast er til að keppendur klæðist í skrúðgöngunni við setningu mótsins.
Hver keppandi þarf að vera búinn að greiða keppnisgjaldið til að fá mótsgögnin afhent en hægt er að sjá upplýsingar um hvernig á að greiða inn á heimasíðu landsmótsins sjá hér.
Keppni á unglingalandsmóti er fyrir 11-18 ára börn og unglinga en auk þess gefst yngri börnum færi á að keppa í boltagreinum og frjálsum en þau þurfa ekki að greiða neitt mótsgjald og skrá sig bara á staðnum.
Við tökum stolt á móti gestum okkar og veita þeim harða keppni um leið og við sýnum þeim alla okkar gestrisni.





Skrifa athugasemd