Ágúst
Sveppur
Sveppur
Lerkisveppur

29.08.2007 Ágúst

Er Ferðafélagið að breytast í sælkeraklúbb

Síðast liðinn laugardag stóð Ferðafélagið fyrir ferð í Haukafell. Þar gafst fólki kostur á að fara í blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingu í boði Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Sigríður Sævaldsdóttir leiðbeindi um villisveppi og meðferð þeirra. Þegar búið var að týna dálítið af sveppum, voru grillaðir hamborgarar sem runnu ljúflega niður með smjörsteiktum villisveppum og heilsutei sem lagað var úr jurtum sem týndar voru á staðnum. Næsta ferð félagsins verður laugardaginn 1. september, en þá verður farið í Breiðamerkurfjall í Öræfum. Þetta er einstakt tækifæri, því þetta er ekki í alfaraleið.

Leiðsögumenn verða öræfingarnir Gunnar Sigurjónsson og Gísli Jónsson. Ferjað verður að fjallinu á bát. Létt ganga verður um fjallið fyrir þá sem vilja og meðal annars skoðað svæðið þar sem Sigurður á Kvískerjum lenti í snjóflóðinu 1936.

Lagt verður af stað frá Tjaldstæðinu kl. 9:00. Verð 1000 kr. 16 ára og eldri. Allir velkomnir. Upplýsingar veita Ragna 662-5074, Magga 478- 8948 868 -7624

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica