Súpa og kynning í Nýheimum á samstarfsmöguleikum í Evrópu
Mánudaginn 29. september verður haldin súpufundur í fundarsal Nýheima og hefst hann klukkan 12:00. Fundurinn er ætlaður einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum, rannsóknaaðilum, og opinberum aðilum. Anna Lúðvíksdóttir sérfræðingur Evrópumiðstöðvar Impru á Nýsköpunarmiðstöð verður með kynningu á möguleikum fyrirtækja, stofnana og rannsóknaaðila á samstarfi við sambærilega aðila í Evrópu. Sérstaklega verður farið yfir verkefni á sviði tækniyfirfærslu, samvinnu, rannsókna og styrkveitinga Evrópusambandsins.
Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð er aðili að samstarfsneti Enterprice Europe og innlendir samstarfsaðilar Evrópumiðstöðvar að netinu eru Útflutningsráð og Rannís. Markmið netverksins er að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki, rannsóknaraðila, opinberar stofnanir og háskóla við að efla samkeppnishæfni sína á alþjóðamarkaði.
Stöðugt er verið að leita að fyrirtækjum sem búa yfir þekkingu á sérstökum sviðum og gætu haft áhuga á erlendu samstarfi. Þjónusta okkar er styrkt af Evrópusambandinu og er því viðskiptavinum okkar að kostnaðarlausu.
Enterprise Europe Network býður upp á leit að samstarfsaðilum í gegnum gagnagrunn fyrir tækni- og viðskiptasamstarf og veitir viðskiptavinum sínum auðveldari aðgang að upplýsingum og styrkjamöguleikum. Alls eru um 550 samstarfsaðilar í yfir 40 löndum í gagnagruninum.
Evrópumiðstöð Impru skipuleggur svokallað fyrirtækjastefnumót í tengslum við IceFish sjávarútvegssýningarinnar 2008 og nokkur erlend fyrirtæki hafa boðað komu sína til að kynna sér starfsemi fyrirtækja í sjávarútvegi hér á landi. Upp úr slíkum heimsóknum skapast oft ný viðskiptatækifæri og samstarfsmöguleikar. Fundurinn er því tilvalinn fyrir aðila sem hafa hugsað sér að taka þátt í sjávarútvegssýningunni nú í ár.
Anna verður áfram í Nýheimum fram að flugi klukkan 16:30 þannig að áhugasamir geta hitt hana eftir fundinn og farið yfir hugsanleg verkefni með henni.





Skrifa athugasemd