Október
Hjalti Þór Vignisson
Hjalti Þór Vignisson
Hjalti Þór Vignisson

28.10.2008 Október

Ákveðið var að gera tillögu um byggingu nýrra íbúða

Á bloggsíðu Hjalta Þórs bæjarstjóra segir hann að framkvæmdastjórar sveitarfélagsins hafi farið yfir eftirspurn eftir íbúðum hjá sveitarfélaginu og ákveðið hafi verið að gera tillögu um byggingu nýrra íbúða hér á Hornafirði en lengi hafi verið skoðaðir kostir þess að auka fjölbreytni á fasteignamarkaði hér. Á bloggsíðunni ritar Hjalti: Einnig ræddum við um hvernig best er að geyma sparifé sveitarfélagsins við þessar aðstæður og verður málið tekið til umræðu á bæjarráðsfundi á morgun. Ræddir voru ýmsir kostir, t.a.m. að greiða niður lán sveitarfélagsins. Nú liggja fyrir drög að teikningum vegna breytinga á Hafnarskóla og Sindrabæ vegna flutnings skólahalds úr Nesjum og á Höfn.

Fyrir nokkrum dögum barst mér afrit af bréfi til bæjarstjórnar Hornafjarðar sem ritað var af íbúa í sveitarfélaginu, sem vildi ekki láta nafn síns getið. Bréfið er vel skrifað og málefnalegt og því undrar mig af hverju þessi ágæti íbúi vilji ekki koma fram undir nafni. Meginstefið í málflutningi íbúans er að sveitarfélagið verði að koma hressilega til móts við fjölskyldur með því að lækka gjaldskrár, s.s vegna leikskóla, og auka niðurgreiðslur til íþróttastarfs allverulega. Ástæðan eru breyttar aðstæður í efnahagsmálum sem bitna á fólki hér á Hornafirði til jafns við alla landsmenn. Ég hef áður lýst yfir áhyggjum mínum á að efnahagsástandið komi til með að bitna á íbúum hér á Hornafirði og við því þurfi að bregðast.

Bæjarráð tók bréfið til umfjöllunar á síðasta fundi og ræddi innihald þess og tillögur. Á fundinum var rætt um að bæjarstjórn hafi í haust lækkað leikskólagjöld og gjöld fyrir lengda viðveru auk þess að auka systkinaafslátt verulega. Þessi ákvörðun þýðir að á kjörtímabilinu hafa leikskólagjöld lækkað meira en 20% að raungildi. Bæjarráð ræddi mikið um tómstundakort og hvernig haga beri innleiðingu þeirra. Þau koma aftur til umræðu á bæjarráðsfundi á morgun. Gerðar hafa verið tillögur um reglur sem gilda á um kortin og þau taka gildi í síðasta lagi 1. janúar nk. Í þessari umræðu er vert að minnast á að sveitarfélagið jók talsvert við stuðning sinn við íþróttastarf á síðasta ári og gerði UMF. Sindra betur kleift að halda úti starfi framkvæmdastjóra. Bæjarráð mun skoða þessi mál áfram og vera vakandi yfir ástandinu. Það er einhugur um það að vera vel á varðbergi og bregðast við eins og kostur er ef það kemur í ljós að ástandið bitnar verulega á íbúum sveitarfélagsins.

Ég fagna þessu innsenda erindi og hvet íbúa til að taka þátt í umræðu um málefni sveitarfélagsins en jafnframt að skrifa þau undir nafni enda tel ég fátt að óttast fyrir þá sem vilja taka þátt í málefnalegri og uppbyggilegri umræðu um það sem betur má fara í okkar samfélagi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica