Krakkakotsbörn leiðbeinendur í Ekru
Flokkunarílát fyrir sorp hafa verið sett upp við leikskólann Krakkakot og er þeirri flokkunarstöð ætlað að þjóna leikskólunum, hjúkrunarheimilinu og Ekrunni og að sjálfsögðu er öllum öðrum íbúum velkomið að nýta stöðina. Til þess að öllu skuli nú vel til haga haldið og farið eftir settum reglum tóku krakkarnir á Krakkakoti að sér að leiðbeina eldri borgurunum í Ekrunni hvernig flokka skuli heimilissorp og hvað skuli fara í hvert ílát, sem öll eru vel merkt.
Krakkarnir mættu í samkomusal Ekru í gær ásamt Önnu Hrund Helgadóttur kennara sínum með ýmis sýnishorn af pappírsumbúðum og var vel komið til skila hvernig flokka skal þennan heimilisúrgang. Það leyndi sér ekki að hjá konunum í Ekru voru þetta kærkomnir leiðbeinendur og var vel tekið á móti þeim.




Skrifa athugasemd