Risahumrar
Í morgun hafa nokkrir humrar í stærri kantinum verið á sveimi í bænum og hafa nú tekið sér bólfestu í FAS. Þetta eru þó ekki humrar eins og við eigum að venjast heldur eru þetta væntanlegir útskriftarnemendur að gera sér dagamun í tilefni þess að í dag er síðasti kennsludagur. Við óskum þessum risahumrum til hamingju með áfangann og vonum að prófin gangi vel hjá öllum.
Framundan hjá þeim og öðrum nemendum í FAS er prófatímabil. Næsta mánudag og þriðjudag verða haldin munnleg próf. Skrifleg próf hefjast mánudaginn 4. maí og lýkur 19. maí. Prófsýning verður miðvikudaginn 20. maí milli 10 og 12. Skólahaldi vorannar lýkur svo formlega með útskrift í Nýheimum laugardaginn 23. maí klukkan 14





Skrifa athugasemd