September
Fjölvirkjar í fiskvinnslu
Fjölvirkjar í fiskvinnslu

30.09.2009 September

Fjölvirkjar í fiskvinnslu

Í september hófst námskeiðið Fjölvirkjar í fiskvinnslu. Tildrög námskeiðsins má rekja til verkefnisins Nýrra leiða en tilgangur þess er að styrkja fólk á vinnumarkaði með stutta formlega menntun. Hönnun námskeiðsins var unnin í samvinnu Þekkingarnetsins, Skinneyjar-Þinganess og FAS.
Hér er um að ræða 170 kennslustunda námskeið fyrir lykilfólk í fiskvinnslunni. Kennt er að jafnaði tvisvar í viku í húsnæði Skinneyjar-Þinganess sem sérstaklega er útbúið sem kennslustofa. Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks á vinnslu sjávarafla, efla sjálfstraust og auka faglega hæfni þess. Námskeiðsþættir eru m.a. samvinna og liðsheild, stjórnun, gæði í fiskvinnslu, matvælaöryggi og vinnuvernd.  Einnig vinna þátttakendur að umbótaverkefni innan fyrirtækisins.
Fjórtán starfsmenn taka þátt í námskeiðinu og kennarar koma víða að, m.a. frá Matís, ÞNA og FAS. Áætlað er að námskeiðið standi út janúar en í lokin munu þátttakendur kynna verkefni sín. Að lokum má geta þess að námskeiðið er metið til sjö eininga í framhaldsskólakerfinu. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica