Ráðinn sem sérfræðingur Þorrablóts Hornfirðinga á stór-reykjavíkursvæðinu
Vegna samdráttar í fjölda nefndarmanna hefur þorrablótsnefnd Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu ákveðið að ráða til sín þorrablótssérfræðing til ráðgjafar fyrir nefndina. Ákveðið var að ganga til samninga við Júlíus Guðmundsson (Júlla í Sólbæ) og mun hann verða nefndinni innanhandar við framkvæmd og undirbúning fyrir þorrablótið.
Júlli hefur nú þegar skráð sig á þorrablótið en skráning er nú einmitt í fullum gangi á vefsíðu blótsins, www.xblot.net. Það er því um að gera að skella sér á netið og skrá sig á þorrablót. Búist er við stórgóðri mætingu og dúndrandi stemningu langt fram á nótt.
Nefndin





Skrifa athugasemd