Fréttir
Þorrablót FAS 2012
Þorrablót FAS 2012
Mynd @FAS

04.02.2012 Fréttir

Þorrablót í FAS

Fyrsta þorrablót Nemendafélags FAS var haldið sl. fimmtudag og tókst það með eindæmum vel.

Nemendur hittust í Nýheimum og snæddu þorramat frá Kaffihorninu. Minni karla og kvenna voru lesin ásamt því sem sungin voru lög sem tilheyra þorranum. Undirtektirnar voru mjög góðar og lék Sigurður Mar undir á mandólín sem verður þó að teljast óhefbundið en engu að síður stórskemmtilegt.

Eftir að kvöldverðinum lauk lá leiðin í Sindrabæ þar sem Dj Óli Geir lék fyrir dansi fram eftir nóttu. Eins og áður sagði tókst kvöldið í alla staði mjög vel og stóðu stelpurnar í skemmtinefnd Nemendafélagsins sig stórkostlega í allri skipulagningu og undirbúningi blótsins.

Gaman væri ef þessi viðburður festi sig í sessi og verði endurtekinn að ári og þá með þátttöku enn fleiri nemenda og starfsmanna FAS.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica