Fréttir fruma

Handverk

Átak til atvinnusköpunar, auglýst eftir styrkjum - 05.02.2008 Fréttir fruma

Impra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna verkefnisins Átak til atvinnusköpunar. Þetta er stuðningsverkefni á vegum Iðnaðarráðuneytisins, en Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með verkefninu. Í stjórn Átaksins sitja fimm stjórnarmenn og er Sigríður Ingvarsdóttir formaður stjórnar. Markmið Átaksins er að styrkja nýsköpunarverkefni á vegum fyrirtækja og einstaklinga, efla frjóa hugsun, auka verðmætasköpun og bæta þannig samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og frumkvöðla. Lögð er áhersla á að styðja verkefni snemma á þróunarstigi og sérstaklega horft til verkefna með afgerandi nýsköpunargildi. Nauðsynlegt er að verkefni séu atvinnuskapandi á Íslandi til framtíðar. Lesa meira
 
Handverk

Handverk getur átt við svo til allt milli himins og jarðar - 30.10.2007 Fréttir fruma

Handverk skipar æ stærri sess í ferðaþjónustu hér á landi og eru handverk boðið til sölu víðast þar sem ferðamenn fara um og einhver ferðaþjónusta er í boði. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumunnar í Nýheimum hefur sl. ár tekið þátt í samstarfsverkefni með aðilum í Noregi þar sem verið er að skoða kanadískt módel við uppbyggingu á handverki og eins hvort sú aðferðafræði gæti nýst á norðlægum slóðum. Þessi aðferðafræði sem kallast "economusée" hefur verið í þróun hjá Kanadamönnum í 20 ár og þar eru í dag starfrækt 43 slík handverks fyrirtæki. Lesa meira
 
Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls

Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls - 02.06.2006 Fréttir fruma

30 manns tóku þátt í málþinginu Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls, sem var haldið 26. apríl síðastliðinn í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands setti málþingið og hélt stutt ávarp. Aðrir frummælendur voru Smári Sigurðsson frá Iðntæknistofnun, Sigurður Steingrímsson frá Impru, Nýsköpunarstofu á Iðntæknistofnun, Guðmundur Oddur Magnússon prófessor við Listaháskóli Íslands, Kristín Gestsdóttir framkvæmdastjóri Hornfirska skemmtifélagsins, Hjalti Þór Vignisson forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Kristbjörg Jónasdóttir verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Austurlands og Ari Þ. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf. Í setningarávarpi Ólafs Ragnars kom meðal annars fram að eitt af því sem ráði úrslitum í samkeppni nútímans sé hið skapandi hugarflug, hæfileikinn til að fara nýjar leiðir og að hafa til að bera ferska hugsun og frumleika í ríkum mæli. Lesa meira
 
Handverksmaðurinn Ragnar Arason

Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls - 19.04.2006 Fréttir fruma

Málþing undir heitinu Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls, verður haldið 26. apríl n.k. í Nýheimum. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setur málþingið. Á málþinginu verða skapandi greinar kynntar sem hagnýt atvinnugrein. Stefnur og straumar í skapandi starfsgreinum með sérstaka áherslu á upplifunar- og afþreyingariðnað, Mikligarður sem miðstöð skapandi atvinnugreina, reynsla Hornfirska Skemmtifélagsins af skapandi starfsemi. Markmið málþingsins er að kynna fyrir þinggestum hvað skapandi greinar eru og eins að kortleggja þær skapandi greinar sem eru til staðar á Suðausturlandi og hvernig hægt er að nýta þær til atvinnusköpunar í ríki Vatnajökuls og tengingu við ferðaþjónustuklasa Suðausturlands. Málþingið er öllum opið og þeir sem hafa atvinnu af eða áhuga á hverskyns handverks- og menningarstarfsemi og ferðaþjónustu eru sérstaklega hvattir til að mæta. Lesa meira
 
Álaverkefnið

Sjálfbær nýting á íslenska álnum - 05.04.2006 Fréttir fruma

Undanfarið ár hefur verið unnið að verkefni um hvernig nýta megi íslenska álinn á sjálfbæran hátt. Verkefnið er samstarfsverkefni Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf, Norðurlandsdeildar Veiðimálastofnunar, Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Háskólans í Reykjavík, Meðalfells ehf. og Garðeyjar ehf. Verkefnið var unnið af nemendum Háskólans i Reykjavík þeim Vilberg Tryggvasyni og Arnóri Bjarka Sigurðssyni. Verkefnið hefur fengið fjárhagslegan stuðning frá eftirfarandi sjóðum: Nýsköpunarsjóði Námsmanna, Atvinnuþróunarsjóði Austurlands, Framleiðnisjóð landbúnaðarins og AVS rannsóknarsjóði. Lesa meira
 
RF

Leita eftir verkefnastjóra til að starfa á Hornafirði - 29.03.2006 Fréttir fruma

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (www.rf.is) er að leita eftir verkefnastjóra til að starfa á Hornafirði í nýrri starfsstöð sem stofnunin mun opna í Nýheimum. Um er að ræða nýtt starf sem unnið verður í nánum tengslum við starfsemi Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. eða Frumuna.Hlutverk verkefnistjórans er að stjórna og vinna að verkefnum á vegum Rf. á Hornafirði en þau fela m.a. sér: umsjón með daglegum rekstri, öflun verkefna og áætlanagerð, samstarf við fyrirtæki og einstaklinga um verkefni, vinna við verkefni sem tengjast humarveiðum og vinnslu, kortlagning á tækifærum og kynna verkefni og tækifæri í umhverfinu. Umsækjendur þurfa að hafa lokið meistaraprófi í raunvísindum eða verkfræði. Lesa meira
 
Frumkvodlar_001

Notkun upplýstra leitaraðferða við leiðasmíði í tölvunetum - 03.03.2006 Fréttir fruma

Daði Ármannsson, M.Sc. nemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, vinnur að verkefni er miðar að þróun nýrrar leiðasmíðiaðferðar fyrir tölvunet. Verkefnið er meistaraverkefni Daða, og vinnur hann það í samstarfi við Netsetur Háskólans í Reykjavík og Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík. Daði nýtur aðstöðu Frumkvöðlaseturs Austurlands við úrlausn verkefnisins. Tilgangur verkefnisins er að útbúa skilvirkari leiðasmíðiaðferð fyrir tölvunet, þ.e. hefðbundin þráðræn net, þráðlaus net, og blöndu þráðrænna og þráðlausra neta. Leiðasmíði er grunnþjónusta allra tölvuneta, og miðar að því að uppgötva leiðir á milli tölva sem netinu eru tengdar, með það fyrir augum að senda á milli þeirra skilaboð. Hefðbundnar leiðasmíðiaðferðir, eins og þær sem gjarnan eru notaðar í Internetinu, byggja leiðir og þekkja þegar þeirra er þörf. Hins vegar krefst þetta mikilla auðlinda, sem eru að skornum skammti í netum sem rutt hafa sér til rúms á síðustu árum, og kölluð eru „ad hoc” net. Þau net samanstanda af þráðlausum tölvum sem hver og ein er hreyfanleg. Því hafa menn brugðið á það ráð að byggja leiðir eingöngu þegar þeirra er þörf. Þetta krefst einnig mikilla auðlinda, sér í lagi þegar hreyfanleiki tölva í netinu er mikill. Lesa meira
 
Rannveig Einarsdóttir og Elín Sigríður Harðardóttir

Þróa og þjálfa vinnubrögð í gerð fræðslu- og upplýsingaskilta - 15.02.2006 Fréttir fruma

Eitt af þeim verkefnum sem fram hefur farið í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum nefnist Náttúrulega var tilgangur þess að þróa og þjálfa vinnubrögð í gerð fræðslu- og upplýsingaskilta. Jafnframt að tileinka sér notkun myndvinnslu og landupplýsingaforrits sem keypt var til verkefnisins. Unnin voru nokkur fræðslu og upplýsingaskilti fyrir Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu sem sett verða upp í landi félagsins að Haukafelli á Mýrum. Að verkefninu standa Rannveig Einarsdóttir og Elín Sigríður Harðardóttir. Í kjölfar þess að félagið fékk jákvæð svör um styrk frá Pokasjóði og Ferðamálaráði til að gera fræðslu- og upplýsingaskilti fyrir land félagsins, var ákveðið að hefja vinnu við gerð skiltanna. Lokið er grafískri vinnu við skiltin. Veturinn verður notaður til vinnu við smíðar og uppsetningu skiltanna. Texti á erlendum tungumálum verður á undirskilti sem hægt er að draga út undan aðalskilti. Skiltunum verður komið fyrir á steinum og trjám sem fyrir eru í landinu og yfirlitsskilti verður við aðkomu á þjónustuhúsi. Lesa meira
 
Ekið eftir Jökulsárgljúfrum. (Mynd Rannveig Einarsd.)

Vinnufundur hjá Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands - 09.11.2005 Fréttir fruma

Fyrirhugað er að halda vinnufund hjá Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands 16.nóv.nk. og verður fundurinn haldinn í Nýheimum og hefst kl. 10.00 Vinnuhópnum til halds og trausts verður Elvar Knútur Valsson verkefnastjóri hjá Impru Nýsköpunarráði sem aðstoðar við að koma vinnunni á stað. Vinnan sem fer þarna fram, er að skilgreina og setja í gang þau verkefni sem eiga þátt í að uppfylla stefnu og þau markmið sem menn settu sér með klasaverkefninu. Stefna ferðaþjónustuklasa Hornafjarðar er: með markvissu klasasamstarfi fyrirtækja, stofnana og sveitarfélags verði ferðaþjónusta svæðisins öflug og arðbær heilsársatvinnugrein og markmiðin eru að bæta afkomu fyrirtækja í greininni lengja ferðamannatímann og einnig viðverutíma ferðamanna ásamt því að fjölga störfum í ferðaþjónustu á svæðinu. Lesa meira
 
Á Hornafjarðarflugvelli

Flugsamgöngur verði eins og best verður kosið - 11.05.2005 Fréttir fruma

Fyrsti fundur samgönguhóps innan ferðaþjónustu-klasans var haldin 19. apríl í Nýheimum. Byrjað var á að fara lauslega yfir þá vinnu sem búið var að vinna í klasa-verkefninu og skoða hvernig samgöngumál hafa bein áhrif á ferðaþjónustuna. Þá var á fundinum sérstaklega farið yfir flugsamgöngur því mjög mikilvægt er fyrir uppbyggingu ferðaþjónustunnar á svæðinu að flugsamgöngur verði eins og best verður kosið og þróun flugmála verði í samræmi við aðra þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Fram kom í máli fundarmanna að frá árinu 2000–2004 hafi farþegum fækkað um 11.000 eða úr 20.000 farþegum niður í 9.000 farþega. Þessi þróun á sér stað á sama tíma og komum erlendra ferðamanna er að fjölga til svæðisins og landsins. Lesa meira
 

Kynning á Frumunni. - 18.03.2005 Fréttir fruma

Fruman hefur unnið sér sess í samfélaginu og er tilbúið að takast á við og leiða frumkvöðla og nýsköpunarstarf í samfélaginu. |nl| Lesa meira
 
Lifandi humar

Geymsla og flutningur á lifandi leturhumri. - 17.03.2005 Fréttir fruma

Niðurstaða verkefnisins er sú að nauðsynlegt er að flytja verkefnið yfir á næsta stig þróunarferlisins og setja í gang tilraunavinnslu sem nái til veiða, vinnslu og markaðssetningu á ferskum / lifandi humri. |nl|Samkvæmt skýrslunni og gefnum forsendum er möguleiki að veiða, geyma og flytja lifandi humar á hagkvæman hátt. |nl| Lesa meira
 
Árni og Gunna Steina, hress að vanda

Námskeið um gerð umsókna vegna styrkja, lána og þróunarverkefna - 04.11.2004 Fréttir fruma

Farið verður yfir þau atriði sem fram þurfa að koma í umsóknum til Byggðastofnunnar og nokkurra annarra stofnana og fjárfestingasjóða. Jafnframt verða kynntir helstu aðilar sem veita stuðning í formi áhættufjármögnunar, styrkja og þróunarverkefna.

Námskeiðið er sniðið að þörfum smárra fyrirtækja og einstaklinga sem hyggjast stofna til atvinnurekstrar.

 

Lesa meira

 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)

Málþing um atvinnumál - 02.11.2004 Fréttir fruma

Á málþinginu verður samstarfsformið klasar kynnt, hagnýt not klasa fyrir fyrirtæki og stofnanir. Klasar hafa víða náð verulegum árangri. Þessu til stuðnings verða dregin fram bæði innlend sem erlend dæmi. Jafnframt verður farið yfir möguleika fyrirtækja og stofnanna á Hornarfirði til að efla rekstur sinn með klasasamstarfi. Markmið málþingsins er að fá svar við þeirri spurningu hvort klasa aðferðin geti orðið drifkraftur að atvinnuþróun í sveitarfélaginu Hornafirði. Frumkvöðlasetur Austurlands og atvinnumálanefnd Hornafjarðar standa að málþinginu í samvinnu við Iðntæknistofnun Íslands, Atvinnuþróunarsjóð Austurlands og Nýheima. Lesa meira
 
G. Ágúst Pétursson hjá Frumkvöðlafræðslunni

Lífleg starfsemi Frumkvöðlafræðslunnar - 13.07.2004 Fréttir fruma

Frumkvöðlafræðslan sem er til húsa í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum mun standa fyrir námskeiði fyrir kennara á framhaldsskólastigi í frumkvöðlafræðum og hafa þegar skráð sig kennarar frá þeim skólum sem verða með fagið á námsskrá á haustönn. Vegna þessa eru fræðslan að þýða og staðfæra kennslubók í faginu og er nú leitað eftir fjármagni hjá stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum vegna útgáfu kennslubókarinnar. Frumkvöðlafræðslan mun standa fyrir námskeiðum fyrir frumkvöðla vítt og breytt um landið m.a. í Vestmannaeyjum og á Húsavík. Einnig mun Frumkvöðlafræðslan fara í samstarf við bændasamtökin sem felur í sér að vera með ný námskeið um frumkvöðlafræði fyrir bændur í haust. Byrjað verður í Dölum vestur og á Suð-Austurlandi. Lesa meira
 
Ari Þorsteins tekur á móti viðurkenningunni

Ari Þorsteinsson og Fruman hljóta hvatningarviðurkenningu - 25.06.2004 Fréttir fruma

Á aðalfundi Þróunarfélags Austurlands sem haldinn var í gær hlaut Frumkvöðlasetur Austurlands og Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri setursins hvatningarviðurkenningu frá Þróunarfélaginu, Frumkvöðlasetrið hlaut viðurkenninguna fyrir að innleiða áhugaverða nýjung í atvinnuþróunarstarf á Austurlandi og Ari fyrir stjórnun setursins af miklum myndarskap. “Ari Þorsteinsson verkfræðingur hefur stýrt uppbyggingu Frumkvöðlasetursins frá stofnun þess og farist það afar vel úr hendi. Ari býr yfir fagþekkingu og reynslu sem nýtist setrinu vel, er baráttuglaður og bjartsýnn að eðlisfari og á gott með að sjá um öll þau vandasömu samskipti sem óhjákvæmilega fylgja rekstri Frumkvöðlasetursins. Að auki er Ari hugmyndaríkur og skipuleggur störf sín vel og hafa þeir eiginleikar hans átt drjúgan þátt í því að á vegum Frumkvöðlasetursins er nú rekið fjölbreytt og kröftugt nýsköpunar- og þróunarstarf” sagði Auður Anna Ingólfsdóttir stjórnarmaður Þróunarfélagsins við afhendingu viðurkenningarinnar. Lesa meira
 
Grétar Már Þorkelsson umsjónarmaður Búnaðarsambands

Fluttur með Búnaðarsambandið í Nýheima - 20.06.2004 Júní

Umsjónarmaður búnaðarsambands A-Skaft, Grétar Már Þorkelsson hefur flutt sig um set og er kominn með afgreiðslu fyrir bændur og búalið í Nýheimum, nánar tiltekið í aðstöðu Frumkvöðlaseturs Austurlands. Búnaðarsambandið hefur verið með aðstöðu sína á Rauðabergi 2 á Mýrum, en af hverju að flytja hana úr sveitinni út á Höfn? “Þetta var vilji bændanna, þeim finnst að þeir eigi auðveldara með að nálgast mig hér því þeir eigi alltaf erindi á Höfn og finnst gott að geta sameinað ferðirnar á einn stað” segir Grétar. Ég fékk góða aðstöðu hérna og er afskaplega ánægður með þetta allt. Hvað búskapinn í sýslunni varðar segir Grétar að hann gangi mjög vel, sauðburður búinn og bændur almennt farnir að heyja. Nokkuð er síðan bændur í Nesjum byrjuðu að slá og þar er fyrra slætti víða að ljúka. Heyskapartíð hefur verið sérlega góð og grasspretta mikil. Lesa meira
 
María Emilsdóttir, Eik Aradóttir, María Gísladóttir og Ásgrímur Arason sækja jakann góða (Mynd AÞÞ)

Hluti úr Vatnajökli á sýningu í París - 09.06.2004 Fréttir fruma

Í tengslum við íslenska menningarviku sem haldin er í haust í París verður fluttur út ísjaki úr Jökulsárlóni og er táknrænt gildi hans að vera hluti af Vatnjökli sem er stærsti jökull Evrópu. Sendiherra Íslands í París Sigríður Á. Snævarr hafði samband við Aðalstein Ingólfsson hjá Skinney Þinganesi og leitaði aðstoðar hans við öflun jakans, Aðalsteinn fékk síðan Ara Þorsteinsson hjá Frumkvöðlasetri Austurlands til þess að sjá um framkvæmd verksins. Sýnishorn eða um 16 kílóa jaki var sóttur að Jökulsárlóni og verður hann notaður í drykki á blaðamannafundi sem verður haldinn á morgun þar sem íslenska menningarvikan verður kynnt. Klakinn var einnig sýndur í sjónvarpsviðtali við Sigríði í gærkvöldi. Lesa meira
 
Hornafjarðarhöfn

Frumkvöðlastarfið - 16.10.2003 Fréttir fruma

Það er mikið líf og fjör í kringum Frumkvöðlasetur Austurlands. Nýlokið er viku nýsköpunar og í þessari viku var haldið námskeið um gerð umsókna vegna styrkja, lána og þróunarverkefna og var það í samvinnu við Þróunarstofu Austurlands. Í næstu viku er fyrirhugað námskeið um stofnun og rekstur smáfyrirtækja og kynningarfundur um viðskiptasérleyfi. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands sagði að þetta námskeið sé ætlað þeim sem hafa áhuga á að stofna fyrirtæki, bæta núverandi rekstur, læra gerð viðskiptaáætlana eða fyrir þá sem eru með einhverja brilliant hugmynd sem allir eru orðnir hundleiðir á að hlusta á og tími því komin til að framkvæma. Skráning á þetta námskeið er til 20. október. Lesa meira
 
Ari þorsteinsson

Fyrstu frumkvöðlarnir í Frumkvöðlasetur Austurlands - 03.10.2003 Fréttir fruma

Undirritaðir hafa verið samningar við fyrstu frumkvöðlana sem fá aðstöðu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum á Hornafirði. Þessi fyrirtæki eru Laxanes ehf og Frumkvöðlafræðslan. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlasetursins ásamt þeim Guðjóni Jónssyni f.h. Laxanesi ehf og G. Ágúst Péturssyni undirrituðu samninginn. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica