Fyrirtækjaskrá

Glæsilegt úrval
Glæsilegt úrval

Handraðinn

Handverksfélagið Handraðinn er félag lista- og handverksfólks. Það var stofnað 1994 og er staðsett á Höfn í Hornafirði. Félagar eru um 90 talsins og eru 40 framleiðendur þess handverks sem í versluninni er. 

  • Heimilisfang: Vesturbraut ( N1)
  • Sími: 478 1781
  • Opnunartími: Alla daga frá kl. 9 - 18

Mikil fjölbreytni er á vörum félagsmanna, má þar nefna listmuni úr tré, leir, gleri, steinum, þæfðri ull, bútasaum, endurunnum pappír, málverk eftir heimamenn ofl. Einnig er mikið úrval af prjónavörum bæði úr ull og öðru garni. Auk þessa eru stórglæsilegar ljósmyndir úr hinni stórbrotnu náttúru Hornafjarðar settar á blindramma í hinum ýmsu stærðum og gerðum.

Félagar hittast einu sinni í viku yfir vetrartímann og miðla þekkingu sinni, eins og að vinna ull, þæfa, lita, spinna, prjóna, hekla ofl. Félagið hefur staðið fyrir ýmsum námskeiðum sem opin eru öllum sem áhuga hafa.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica