Þjónustumiðstöðin í Skaftafelli
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli
Í Skaftafelli er boðið upp á gistingu á stóru tjaldstæði með hreinlætisaðstöðu. Tjaldsvæðið er rúmgott og sérstakt svæði er ætlað fyrir húsvagna og svefnbíla. Bílastæði eru við tjaldsvæðið og frá því liggja gönguleiðir um þjóðgarðinn. Tjaldsvæðið er opið frá 1. maí til 30. september. Yfir sumartímann er hægt að fá léttar veitingar í þjónustumiðstöðinni og helsut nauðsynjar tjaldbúans
Í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli veita starfsmennþjóðgarðsins upplýsingar um þjóðgarðinn sem og þjónustu og afþreyingu ínágrenninu. Þar er einnig gestastofa með margvíslegu fræðsluefni.Í þjóðgarðsversluninni fást m.a. ferðakort, handbækur og ljósmyndabækur umÍsland en einnig íslenskt handverk og minjagripir.
Veitingasalan í Skaftafelli er opin yfir sumartímann. Þar
eru á boðstólum léttar veitingar, súpa, smurt brauð og kaffibrauð. Einnig eru
þar helstu nauðsynjar tjaldbúans eins og brauð og mjólkurvörur.
Landverðir bjóða upp á gönguferðir alla daga frá 15. júní til 15. ágúst ogbarnastundir um helgar.Ýmis afþreying er í boði í nágrenninu svo sem ferðir út í Ingólfshöfða,lengri og skemmri jöklagöngur og fjallaferðir og svo er sundlaug í Svínafelli sem er í 7 km. fjarlægð