Árnanes 5
Ferðaþjónustan Árnanesi
Árnanes - Gistiheimili og hestaleiga
Árnanes býður upp á gistingu fyrir 40 manns í 18 herbergjum. Herbergin eru í fimm aðskildum húsum, vel búin og rúmgóð.
Í Árnanesi er veitingasalur sem tekur 40 manns í sæti og er þar lögð áhersla á sjávarrétti og hefðbundinn íslenskan mat.
Í Árnanesi er boðið upp á hestaferðir fyrir alla fjölskylduna.
Gisting: Árnanes býður upp á gistingu fyrir 40 manns í 18 herbergjum. Herbergin eru í fimm aðskildum húsum, vel búin og rúmgóð. Ellefu þeirra eru með sér baðherbergi og sjö herbergi eru án baðs.
Veitingar: Í Árnanesi er veitingasalur sem tekur 40 manns í sæti og er þar lögð áhersla á sjávarrétti og hefðbundinn íslenskan mat. Árnanes er 150 m frá þjóðvegi eitt, einn km austan við Hornafjarðarflugvöll og sex km vestan við Höfn.
Hestaferðir: Fjölskyldan getur notið útreiðatúra saman á
traustum og áreiðanlegum hestum í fallegu umhverfi. Árnanes býður upp á stutta reiðtúra eða
lengri ferðir á hestum sem hæfa getu hvers og eins. Hlífðarfatnaður og hjálmar eru til staðar og
kennsla er fyrir byrjendur í upphafi ferðar.
Ferðirnar sameina útivist, náttúruupplifun og einstakt samband hests og
knapa.