Atlandsflug
Atlantsflug ehf
Atlantsflug vara stofnað til að veita flugþjónustu fyrir ferðamenn. Aðaflugstarfsemi félagsins er í Skaftafelli þar sem félagið býður upp á útsýnisflugi til staða eins og Grímsvatna, Langasjó, Lakagíga, Landmannalauga og annara staða sem ferðamenn vilja njóta úr lofti. Atlantsflug býður upp á nokkrar mismunandi ferðir og sinnir einnig séróskum aðila svo sem ljósmyndara, kvikmyndatökuaðila og einstaklinga. Janframt býður félagið upp á útsýnisflug frá Reykjavík allt árið.
Félagið notar í flugi hjá sér flugvélar sem hafa reynst vel á Íslandi í gegnum árin og henta vel til útsýnisflugs. Atlantsflug starfar samkvæmt ströngum sam-evrópskum flugreglum “European Aviation Safety Authorty” eða „EU Ops“ fyrir flugið sjálft og samkvæmt „EASA Part-145“ fyrir viðhald flugvéla. Atlantsflug hefur eigið flugrekstrar og viðhaldsleyfi gefið út af Flugmálastjórn Íslands; “ICAA AOC IS.033” og viðhaldsleyfi “ICAA IS.145.011. Félagið er einnig með leyfi Ferðamálastofu sem ferðaskipuleggjandi.
Atlantsflug leggur áherslu veita viðskiptavinum persónulega þjónustu.