Skólaráð
Skólaráð
Skólaráð Grunnskóla Hornafjarðar
Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra, kennara og foreldra um skólahald auk þess sem fulltrúi nemenda á aðild að því í málum sem snerta nemendur beint. Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Hlutverk skólaráðs er meðal annars að fjalla um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð fylgist með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Það getur veitt skólanum og skólayfirvöldum virkt og uppbyggjandi aðhald og komið með tillögur til úrbóta. Á heimasíðu skólans má sjá hvaða fulltrúar skipa skólaráð en það er kosið á almennum foreldrafundi í upphafi skólaárs.
Fundargerðir skólaráðs veturinn 2011 - 2012
Í skólaráði veturinn 2011 - 2012 sitja eftirfarandi fulltrúar:
Fyrir hönd foreldra og grenndarsamfélags
Aðalheiður Fanney Björnsddóttir
Varamenn
Fyrir hönd nemenda
Fyrir hönd kennara
Fyrir hönd annars starfsfólk
Skólastjórnendur
Fundargerðir skólaráðs veturinn 2010 - 2011
8. fundur 16. maí 2011
7. fundur 11. apríl 2011
2. fundur 1. nóv 2010
1. fundur 7. okt 2010


