Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í gærkvöldi frumsýndi leikhópur Grunnskólans leikritið Viltu vera vinur minn á Facebook eftir Önnu Brynju Baldursdóttur í leikstjórn Kristínar Gestsdóttur. Leikritið er sýnt í Sindrabæ og er næsta sýning í kvöld þriðjudag kl. 20:00. Sýningin stendur í rúmar 30 mínútur og það kostar 500 kr inn á sýninguna.
Lesa meira
Þorrablót nemenda í 8. – 10. bekk var haldið í Sindrabæ fyrstu vikuna í febrúar. Það voru nemendur í 10. bekk sem sáu um skemmtiatriðin sem voru svo vægt sé til orða tekið „frábær“. Skemmtiatriðin fjölluðu að mestu um kennara og var greinilegt að hópurinn hafði lagt mikla vinnu í að gera þau sem best úr garði. Einnig var minni karla og kvenna flutt og var það gert með glæsibrag eins og allt annað hjá krökkunum þetta kvöld.
Lesa meira
Nú er komið að annarskilum. Vetrarönn að ljúka og vorönn tekur við. Föstudaginn 3. febrúar er viðtalsdagur þar sem nemendur ásamt foreldrum mæta í viðtal við umsjónarkennara.
Lesa meira
Á föstudaginn var buðu nemendur fjórða bekkjar foreldrum sínum og ömmum í heimsókn í skólann. Tilefnið var lok verkefnisins um Móse og ferð hans með þjóð sína yfir eyðimörkina til fyrirheitna landsins. Undanfarnar vikur hafa nemendur unnið að verkefninu með þeim hætti að fyrst voru sögurnar um Móse lesnar, næst drógu nemendur myndir úr Biblíum upp á glærur sem var síðan varpað upp á stóran pappír á veggnum.
Lesa meiraÍ Grunnskóla Hornafjarðar hefur lengi verið við lýði sá siður að drengirnir hlaupa hringinn í kringum skólann með annan fótinn í buxnaskálminni. Þetta þykir afar spennandi, sérstaklega á yngra stiginu en þeir eldri eru einnig duglegir að taka þátt. Stelpurnar taka þátt með því að hvetja strákana óspart áfram.
Lesa meira
Á sama tíma og „strákarnir okkar“ keppa á EM halda nemendur í Heppuskóla handboltamót þar sem keppt er í tveim riðlum. Það er nemendafélagið sem stendur fyrir þessu móti sem haldið er í fyrstu frímínútum hvers dags.
Lesa meira
Í byrjun desember ákváðu börnin í 3. HS að fara í lestrarátak. Átakið stóð í 2 vikur og á þeim tíma lásu börnin 245 bækur!
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember