Fréttir Grunnskóli

Logo-GH

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar - 23.08.2007 Fréttir Grunnskóli

Skólasetning í Grunnskóla Hornafjarðar 1. - 10. bekk verður kl. 11.00 föstudaginn 24. ágúst í íþróttahúsinu á Höfn. Eftir setninguna fer hver nemandi í sína starfsstöð. Þar sem enginn skólaakstur er í tengslum við skólasetninguna verða foreldrar nemenda í 1.-3. bekk að sjá um að koma þeim í Nesjaskóla að lokinni setningarathöfn. Allir velkomnir

Skólastjórnendur

Lesa meira
 
Namskeid_agust_07_006

Góð mæting á námskeið um uppbyggingarstefnuna - 23.08.2007 Fréttir Grunnskóli

Um 80 manns sátu námskeið um Uppeldi til ábyrgðar (restitution) á vegum skólaskrifstofu Hornafjarðar 15. og 16. ágúst. Námskeiðið sóttu starfsmenn leikskóla, grunnskóla og íþróttamiðstöðvar og var almenn ánægja hjá þátttakendum. Námskeiðið fjallaði um leiðir til að auka ábyrgð fólks á eigin lífi og stuðla að meiri ánægju í lífinu. Á næstu vikum ætla þeir sem á námskeiðinu voru að æfa sig að nota þessar uppeldiskenningar og kenna þær og kynna fyrir nemendum og foreldrum. Aðalfyrirlesari á námskeiðinu var Diane Gossen en héðan fór hún til Reykjavíkur og síðan Ísafjarðar þar sem hún heldur þrjú önnur námskeið. Með henni var Hildur Karlsdóttir kennari sem sérhæfir sig nú í því halda námskeið um Uppeldi til ábyrgðar. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica