Val á miðstigi farið af stað
Í vetur ætlum við að prófa okkur áfram með valhópa á miðstiginu. Til að byrja með verður valið í 5.- 7. bekk einn tíma á viku. Nemendur velja sér hóp til nokkurra vikna í einu og var boðið upp á 10 valhópa í fyrstu lotu. Í valhópum blandast nemendur þvert á árganga.
Nánast allir nemendur völdu sex af þessum tíu hópum og því var ákveðið að hafa bara þessa sex hópa. Auk þeirra bættist svo við legóhópur en í honum eru nemendur úr 7. bekk sem ætla að fara í legókeppnina í nóvember. Þeir nota fleiri tíma en einn á viku til undirbúnings fram að keppni.
Markmiðið með valinu er að bjóða upp á nám sem tekur í flestum tilfellum á öðrum markmiðum en hefðbundið nám en markmiðum sem eru þó innan aðalnámskrár. Allir hóparnir sem nemendur völdu byggja á verklegri vinnu sem segir okkur að nemendum finnist gaman að læra með því móti. Það kemur s.s. ekki á óvart því flestum finnst bæði auðveldar og skemmtilegra að læra í gegnum verklega vinnu.
Þeir hópar sem fóru í gang í gær voru leiklistarhópur, legóhópur, íþrótta- og útivistarhópur, myndlistar- og föndurhópur, heimilisfræðihópur, sveitahópur og tölvuhópur. Bæði nemendur og kennarar voru afskaplega ánægðir eftir fyrsta tíman og vonandi er valið komið til að vera.



