1. bekkur í heimsókn á Krakkakot
Fimmtudaginn 4. október brá 1. bekkur undir sig betri fætinum og fór í heimsókn á Krakkakot. Heimsóknin er liður í samstarfi á milli skólanna sem kallast Brúum bilið. Það er gaman fyrir börnin að koma í heimsókn í sinn gamla skóla að hitta vini og starfsmenn sem tóku vel á móti hinum nýju grunnskólanemum. Það var glatt á hjalla og tíminn leið hratt við leik og störf. En þegar komið var til baka inn í skóla var tekið til við að læra sem 1. bekkingar stunda nú af kappi þessa dagana.



