Mér finnst rigningin góð
En það er samt betra að vera vel klæddur þegar rignir
Á rigningardögunum undanfarið höfum við áþreifanlega orðið vör við að mörg börn koma illa klædd í skólann og alls ekki undir það búin að vera úti í frímínútum. Við leggjum hinsvegar mikla áherslu á að nemendur í 1. - 7. bekk séu úti í frímínútum og þá setjum við rigningu ekki fyrir okkur. Við minnum því á að regngalli og stígvél er nauðsynlegur hlífðarfatnaður hverju hornfirsku barni.
Nemendur í yngri bekkjum grunnskólans hafa mikla hreyfiþörf og því nauðsynlegt fyrir þau að komast út á milli tíma og hreyfa sig svolítið. Mörgum nemendum finnst líka mjög gaman að vera úti í roki og rigningu, sérstaklega þegar þau eru vel klædd. Eins og gefur að skilja er það nú ekki eins skemmtilegt þegar maður er holdvotur og ískaldur.
Njótum þess að vera úti í hvernig veðri sem er og komum vel klædd í skólann.



