Fréttir Grunnskóli
Picture_019
Picture_019

Á skíðum í Oddsskarði

12.03.2008

Nemendur í 8. bekk grunnskóla Hornafjarðar fóru s.l. þriðjudag í skíðaferð í Oddsskarð. Á þriðjudaginn gátu krakkarnir skíðað til klukkan 17:00 og þá var farið í sund og snæddur kvöldverður. Um kvöldið var síðan slappað af eftir strembin dag. Í dag, miðvikudag var barnalyftan í Oddskarði opnuð fyrir krakkana klukkan 10:00 og hafa þau átt fínan dag á skíðum.

Reikna má með að hópurinn skili sér heim um kl. 18:00 í dag og mun rútan stoppa við Heppuskóla.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica