Sigraði í Melodi grandprix
Það er alltaf gaman að segja frá þegar fyrrverandi nemendum skólans gengur vel á nýjum stöðum og jafnvel í nýju landi. Einn af þessum nemendum er Þórdís Imsland en hún býr núna í Danmörku. Skólinn sem Þórdís gengur í heitir Havnbjergskole og er á eyjunni Als á suður jótlandi. Árlega er haldinn melodi grandprix keppni og tóku 14 skólar þátt í keppninni. Keppnin snýst um tónlist eins og nafnið gefur til kynna og þurfa krakkarni sjálf að semja lagið, útsetja og flytja. Skemmst er frá að segja að Þórdís og félagar hennar í skólanum unnu keppnina með glæsibrag.p>
Verðlaunin voru ekki af verri endanum, upptaka á laginu í hljóðveri og útgáfa á geisladisk. Við óskum Þórdísi til hamingju með frábæran árangur og hlökkum til að fá hana aftur í Heppuskóla en hún mun byrja hér í 10 bekk næsta vetur.
- BS



