Ávaxtakarfa
Þetta byrjaði allt þegar að við skráðum okkur í heilsuátakið sem var í gangi fyrir páska, þá fórum við í eitthvern pott á Rás 2.
Svo fékk Rósa (kennarinn okkar) tölvupóst og þá kom í ljós að við höfðum verið dreginn út. Allir voru búnir að ímynda sér trékörfu með hinum ýmsu ávöxtum en í vikunni fengum við girnilegan ávaxtabakka sendan í skólann. Þetta heilsuátak gekk útá það að hreyfa sig sem mest á daginn og skrá svo daginn eftir. Að meðaltali hreyfðu sig allir a.m.k 1 klst. á dag. Við fengum áhuga á þessu um leið og þetta var nefnt, því gott var að fá eitthvað annað að hugsa um en bara námið. Þetta var mjög gaman og allir voru mjög virkir í þessu og mikið væri gaman að fá svona ávaxtabakka á hverjum degi.



