Fréttir Grunnskóli

Hopurinn_i_eyjum_a_vef

7. bekkingar hafa það gott í Vestmannaeyjum - 29.05.2008 Fréttir Grunnskóli

Eins og Hornfirðingar vita þá reið sterkur jarðskjálfti yfir Suðvesturland nú rétt fyrir kl. fjögur. Jarðskjálftinn sem var 6. 1 á Richter átti upptök sín suðvestur af Selfossi. Í Vestmannaeyjum fannst skjálftinn vel sérstaklega hjá þeim sem voru innandyra. Flestir 7. bekkingarnir okkar sem eru í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum voru hinsvegar úti við og sumir urðu hans ekki einu sinni varir. Lesa meira
 
Hopurinn_i_eyjum_a_vef

Vestmannaeyjar ,,here we come” - 29.05.2008 Fréttir Grunnskóli

Veðurguðirnir eru að taka vel á móti okkur í Vestmannaeyjum, hér höfum við átt góðan dag og skoðað það sem dregur ferðamanninn að. Í Herjólfi var svaka gaman, veltingur og fjör. Einhverjir urðu órólegir í maganum en aðrir sváfu og enn aðrir spiluðu. Ferðalagið hófst klukkan 05:15 við íþróttahúsið. Frekar syfjuð og lúin. Kennarar náðu þó að mæta á réttum tíma, og nemendur. Þó svo að allir hafi verið syfjaðir sofnaði enginn, fyrr en í Herjólfi. Við borðuðum nesti á Núpstað, teygðum úr okkur á Hvolsvelli og náðum ferjunni á tilsettum tíma. |nl|Á morgun förum við í siglingu og skoðum Skansinn, spröngum, skoðum Náttúrugripasafnið og förum í sund..... ;) ;) |nl| Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica