Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna
Auður Lóa Gunnarsdóttir 7.M frá Stórabóli komst áfram í Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna. Auður Lóa var með hugmynd sem hún kallar sveitin. En það er tölvuleikur sem miðar út frá íslenskri sveit og störfum sem þar þarf að sinna. Það að komast áfram er stór sigur út af fyrir sig, en í þessum áfanga taka þátt 53 nemendur allstaðar af að landinu og verða þeir í vinnusmiðju þar sem þeir fá hjálp við að útfæra hugmyndirnar í framleiðsluform. En þarna kennir margra grasa allt frá vatnsblöðrubyssu upp í margföldunarsprey.
Grunnskóli Hornafjarðar hefur verið þátttakandi í Nýsköpunarkeppninni undanfarin ár. Eins og áður þá er Eiríkur Hansson smíðakennari sem sér um nýsköpunarkennslu. S.l. ár varð Grunnskóli Hornafjarðar Nýsköpunarskóli ársins.



