Arsenalklúbburinn þakkar fyrir góðar móttökur
Forsvarsmenn Arsenalklúbbsins á Íslandi komu hér helgina 12. - 14. september til að heiðra minningu Tómasar Inga Ingvarssonar sem hefði orðið 11 ára þann 14. september. Þeir færðu Grunnskóla Hornafjarðar treyju áritaða af leikmönnum Arsenal en klúbburinn fær eina slíka treyju á ári. Það voru 6. bekkingar og foreldrar þeirra sem tóku við bolnum fyrir hönd skólans ásamt Ólöfu Ósk og Sævari Þór. Knattspyrnudeildin sá um dagskrá með gestum og var þetta hin skemmtilegasta stund. Forsvarsmenn Arsenalklúbbsins færðu áhangendum Arsenal á Hornafirði ýmislegt smálegt með merki félagsins. Þeir vilja hér með koma á framfæri þökkum fyrir góðar móttökur á Hornafirði og fyrir skemmtilegan dag. Heiður og Ingvar fá þakkir fyrir höfðinglegar móttökur og Hótel Höfn fyrir góða þjónustu og liðlegheit.
Við í Grunnskóla Hornafjarðar þökkum Arsenalmönnum fyrir daginn og við að hjálpa okkur að varðveita minningu Tómasar Inga.



