Nú rignir hann
Síðustu daga höfum við Skaftfellingar ekki farið varhluta af haustrigningunum. Ekkert lát virðist vera á þeim og það er reynsla okkar að þær geti staðið linnulítið fram að jólum. Við í Grunnskólanum erum ákveðin á því að það sé gott að vera úti hvernig sem viðrar og því fara nemendur okkar í 1. - 7. bekk út í flestum frímínútum, sama hve rignir mikið. Það er helst ef með rigningunni fylgir mikill vindur að við leyfum nemendum að vera inni. Það er hinsvegar nokkur misbrestur á því að nemendur komi með regngallana með sér í skólann en þeir gera lítið gagn á snaga í forstofunni heima. Þess má líka geta að töluvert er um að nemendur séu í vindgöllum en þeir hafa lítið að segja í svona rigningu. Nú er ekkert annað en gúmístígvélin og regngallinn sem gildir.
Börn hafa mikla hreyfiþörf og þurfa pláss til að hreyfa sig, það pláss er úti sama hvernig viðrar.
Frímínútur er sá tími dagsins sem flest börn hreyfa sig mest, líka þau sem stunda íþróttir.
Útivera styrkir ónæmiskerfið og eykur lífsþrótt.



