Rífandi fjör í Hafnarkirkju....
Sjaldan hefur myndast jafnmikið fjör í Hafnarkirkju en á tónleikum þar s.l. mánudag. Grunnskóla Hornfjarðar var boðið á ,,Tónlist fyrir alla". Þar komu fram fjórir landsþekktir tónlistarmenn, þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Gunnar Hrafnsson, Björn Thoroddsen og Ásgeir Óskarsson. Dagskráin byggði á íslenska þjóðlaginu "Ljósið kemur langt og mjótt", en tónlistarmennirnir, undir forystu Ólafíu Hrannar fara með lagið í "reisu" um heiminn í stíl og látbragði. Sérstaklega fannst nemendum mikið til koma þegar lagið var sett í rífandi ,,þunga rokks" útsetningu. Ekki varð það leiðinlegra þegar það var rappað og fengu nokkrir að spreyta sig með Ólafíu Hrönn í míkrafóninn.
Svo voru stigin tangóspor með viðeigandi sveiflum. Þetta var stórskemmtileg upplifun og voru nemendur mjög ánægðir. Takk fyrir okkur.
kristinge@hornafjordur.is



