Jólin koma með rithöfundunum
Kærkomin heimsókn rithöfunda var í Grunnskóla Hornafjarðar í dag, en lesið var upp í Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla. Þetta hefur verið árviss viðburður hjá okkur í desember og er orðin hefð í undirbúningi jólanna. Rithöfundarnir skiptu sér niður á aldursstig og las Sigrún Eldjárn fyrir yngsta stig og miðstig úr bókinni, ,,Eyja Sólfuglsins". Á miðstigi las einnig Jóna Á. Gísladóttir úr bók sinni ,,Sá einhverfi". Jóna las einnig á elsta stiginu en auk hennar lásu þar; Sjón úr bók sinni ,,Rökkurbýsnir", Guðmundur Andri Thorsson úr bókinni ,,Segðu mömmu að mér líði vel" og Þórunn Valdimarsdóttir úr ljóðabókinni "Loftnet klóra himin".



