Fréttir Grunnskóli
Kartöflur teknar upp
Mannlíf í Hornafirði
Kartöflur teknar upp (úr myndasafni)

Dagur leikskólans

Föstudaginn 6. febrúar

04.02.2009

 

Þann 6.febrúar 2009 er dagur leikskólans haldinn um allt land og ætlum  við leikskólarnir á Höfn að gera okkur dagamun í tilefni dagsins. Við á Lönguhólum og Krakkakoti ætlum að fara í skrúðgöngu niður í Miðbæ ef veður leyfir þar sem við munum flytja nokkur lög.  Þá verða til sýnis ljósmyndir úr skólastarfi beggja skólanna og einnig munu rúlla nokkrar myndir á SkjáVarpinu á föstudaginn milli kl. 16.00 til 18.00 og á laugardaginn kl. 10.00 til 12.00.  Fólk getur jafnframt lesið sér aðeins til um hvað leikskóli stendur fyrir og kíkt í skólanámskrá leikskólanna en leikskólinn Krakkakot er heilsuleikskóli og leikskólinn Lönguhólar er útileikskóli. Báðir leikskólarnir eru með heimasíður sem fólk getur líka kíkt á:  http://www.leikskolinn.is/longuholar/ og http://www.leikskolinn.is/krakkakot/

Dagur leikskólans var haldinn í fyrsta skipti á síðasta ári en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Það voru Félag leikskólakennara, Menntamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitafélaga og Heimili og skóli sem fóru af stað með verkefnið. Ákveðið var að halda upp á daginn ár hvert og auka þannig jákvæða umræðu um leikskólann og kynna starfið út á við.

Helstu markmið dags leikskólans eru að gera þegna þjóðfélagsins betur meðvitaða um þýðingu leikskóla fyrir börn, að skapa jákvæða ímynd um leikskólakennslu og auka áhuga fólks á starfinu og að beina athygli þjóðarinnar að stöðu leikskólans, gildi hans fyrir menningu og þjóðarauð.

Við verðum að gera okkur grein fyrir því að á bernskuárunum er leikur lífstjáning barns, ríkjandi athöfn og mikilvægasta náms-og þroskaleið þess. Leikurinn er því hornsteinn leikskólastarfsins, lífstjáning og gleðigjafi barns. Þá ber öllum leikskólum að vinna eftir Aðalnámskrá  leikskóla sem gefin er út af Menntamálaráðuneytinu og eins og allir vita þá er leikskólinn fyrsta skólastig barnsins. Námssvið leikskóla eru: hreyfing, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúra og umhverfi, menning og samfélag. Öll námssviðin skarast og þau eru samofin undirstöðuþáttum leikskólastarfs; leik, daglegri umönnun og almennri lífsleikni.

Í leikskóla stíga börn sín fyrstu skref á menntabrautinni. Leikskólastarfið byggist á því að skipuleggja umhverfi þar sem börnin öðlast þekkingu og færni með eigin uppgötvunum í leik og starfi, innandyra sem og úti. Í leikskólum ríkir jákvætt og viðurkennandi andrúmsloft og virðing er borin fyrir einstaklingnum og getu hans til að læra á eigin forsendum. Með leikskólastarfi er markmiðið að stuðla að velferð og hag barna og er það haft að leiðarljósi í öllu starfi. Börnunum skal veitt ummönnun og menntun, þeim búið hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og örugg náms-og leikskilyrði. Þá skal stuðlað að því að nám fari fram í leik og skapandi starfi þar sem börn fái að njóta fjölbreyttra uppeldiskosta.

Að lokum viljum hvetja alla að koma og taka þátt með okkur á föstudaginn 6. febrúar 2009 kl: 10.30 og að sjálfsögðu skoða það sem boðið er upp á til skoðunar. Við viljum taka það fram að þeir sem ekki komast á föstudeginum til að skoða geta einnig kíkt á ljósmyndirnar á laugardeginum 7. febrúar 2009 á meðan opið er í Miðbænum og minnum aftur á myndir á skjávarpi.

 

Hlökkum til að sjá ykkur

Kærar kveðjur frá

Lönguhólum og Krakkakoti

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica