Fréttir Grunnskóli
Stóra upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin

Bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar

13.02.2009

Nemendur í 7. bekk taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni eins og undanfarin ár.  Formlegur undirbúningur hefur staðið yfir síðan á degi íslenskrar tungu 17. nóvember og lýkur 11. mars á lokahátíð keppninnar í Hafnarkirkju.  Nemendur hafa verið iðnir að æfa sig á á þessum tíma bæði heima og í skóla með því að lesa margvíslegan texta, bæði bundinn og óbundinn.    

Í dag fór fram bekkjarkeppnin og er því búið að velja þá 12 nemendur sem komust áfram. Munu þeir taka þátt í skólakeppninni sem fer fram í Nýheimum þann 26. febrúar.n.k.. Þau sem komust áfram eru: 

Agnar Jökull Imsland Arason, Alexander Snær Stefánsson, Arnar Freyr Valgeirsson, Darri Snær Nökkvason, Guðrún Kristín Stefánsdóttir, Heiðdís Anna Marteinsdóttir, Ívar Örn Valgeirsson, Jóhann Klemens Björnsson, Kristófer Örvar Ögmundsson, Marteinn Eiríksson, Ragnar Magnús Þorsteinsson og Una Guðjónsdóttir.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica