Kátakot
Eins og flestir bæjarbúar vita þá standa fyrir dyrum miklar breytingar í Grunnskólanum. Eitt af því sem breytist er að lengda viðveran færist út í lausu kennslustofurnar bak við skólann. Af því tilefni hafa krakkarnir í lengdu viðverunni valið nafn á hana og mun hún heita Kátakot eftir að hún færist í nýtt húsnæði. Stefnt er að því að opna Kátakot miðvikudaginn 15. apríl, fyrsta kennsludag eftir páska og þá ætla krakkarnir í Kátakoti að halda opnunahátíð.



